<$BlogRSDURL$>
Ragnheiður P
miðvikudagur, maí 26, 2004
  Er komin með nýja síðu  
mánudagur, maí 24, 2004
  Lífið er yndislegt ég geri það sem ég vil.....

Mér finnst eins og ég sé búin að vera í fríi endalaust, er búin að hafa það alveg rosalega nice. Fór í útskriftarpartý til Önnu á laugardaginn. Fór með Dísu og Rúnu í bæinn á kagganum hennar Ásdísar, við spókuðum okkur í höfuðborginni. Ég hafði það eitt að markmiði að kaupa mér hvíta eyralokka, það hljómar ekkert eins og það sé eitthvað erfitt en við fórum í Smáralindina og ég gjörsamlega þræddi allar búðirnar í þeirri von um að finna það sem ég leitaði að, en neinei allt kemur fyrir ekki, það sem ég nákvæmlega leitaði að var bara ekki til :) Þetta er reyndar ekki í fyrsta og ekki í annað sinn sem ég finn ekki það sem ég leita að því stundum bý ég eitthvað til í hausnum á mér og bind vonir um að búið sé að setja hugmynd mína á markað :)

Þó að ég hafi nú ekki fundið hvíta eyrnalokka þá skemmdi það nú ekki djammið fyrir mér. Kvöldið var geggjað og vil ég þakka öllum þeim sem áttu þátt í að gera kvöldið svona skemmtilegt kærlega vel fyrir það :)

Hérna eru nokkrar myndir frá kvöldinu

Later  
fimmtudagur, maí 13, 2004
  Nú er komið sumar, svona á það að vera..... :)

Skvísan er komin í sitt langþráða sumarfrí eftir frekar strembinn vetur en öll prófin eru í höfn svo að ég get bara slappað af og haft það gott þar til ég byrja að vinna þann 2. júní !

Á máudaginn var málflutningsæfing hjá okkur laganemum og var mér falið það verkefni að vera dómari. Þetta var rosalega skemmtileg upplifun og að sjá svona réttarhöld frá sjónarhóli dómara. Dómurinn kvað svo upp dóminn í gær sem var þá síðasta verkefni vetrarins.

Ég er búin að vera alveg rosaleg húsmóðir undanfarið, er skyndilega komin með húsmóðursfíling. Mér finnst það reyndar ekkert skrýtið, maður getur lítt sinnt þessum verkefnum þegar skólinn er á fullu. Er búin að vera að baka, þrífa og hugsa um kallinn þar sem hann er ennþá í prófum, hann klárar svo á morgun !

Á morgun flytjum við svo helminginn af okkur í keflavík yfir sumarið þar sem við verðum bæði að vinna í nafla alheimsins (þ.e. Keflavík).

Á laugardaginn er hið langþráða eurovision kvöld. Það er búið að bjóða mér í teiti í Ljósalindinni og læt ég mig að sjálfsögðu ekki vanta. Hlakka til að sletta úr klaufunum, enda er þetta líka innifalið skólalokadjamm ;)  
þriðjudagur, maí 04, 2004
  Útskriftarnemar lagadeildar vorið 2005 eru komnir með heimasíðu, tjekk it out ;)

Við erum byrjuð að safna á fullu fyrir útskriftarferð sem sennilega verður farin í janúar á næsta ári. Mér finnst samt ótrúlega skrýtið að hugsa til þess að útskrifast með BA-gráðu eftir 1 ár (þ.e. ef allt gengur upp hjá mér).

Annars var mikið trallað um helgina síðustu. Fór á málþing í skólanum á laugardaginn um nýja fjölmiðlafrumvarpið þar sem Davíð Þór Björvinsson, Styrmir Gunnarsson og Þórlindur Kjartansson fluttu erindi. Hitti svo skvísurnar í Kringlunni, fengum okkur kaffi og fórum svo í nammiland (alltaf nammidagur hjá minni á einu sinni í viku) stundum oftar ;)
Ég í sakleysi mínu ætlaði svo að kaupa mér eitthvað gott að drekka í mjólkurbúðinni á laugardaginn en nei nei það var allt lokað hjá ÁTVR, en Nína systir hennar Önnu var svo væn að redda okkur :) takk takk !
Kvöldið byrjaði svo á partyi í Ljósalindinni, síðan var það bærinn, geggjað stuð !

Jæja verð að snúa mér aftur að verkefnavinnunni, bæjó :) 
Fyrir þá sem ekki vita en eru mjög forvitnir þá er þetta bloggið hennar Ragnheiðar. Ég er 22. ára Keflavíkurmær sem stunda nám við Háskólann í Reykjavík og bý því nú á studentagörðunum. E-mail og msn: ragnheidur81@hotmail.com

Gestabókin mín

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

Skemmtileg blogg
Anna Ósk
Dísa skvís
Begga
Hjödda
Alda
Sirrý
Anna Alberts
Birna Rún
Gutti
Járnskvísan

Gamalt og krafsandi
07/01/2002 - 08/01/2002 / 08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2002 - 10/01/2002 / 10/01/2002 - 11/01/2002 / 11/01/2002 - 12/01/2002 / 12/01/2002 - 01/01/2003 / 01/01/2003 - 02/01/2003 / 02/01/2003 - 03/01/2003 / 03/01/2003 - 04/01/2003 / 04/01/2003 - 05/01/2003 / 05/01/2003 - 06/01/2003 / 06/01/2003 - 07/01/2003 / 07/01/2003 - 08/01/2003 / 08/01/2003 - 09/01/2003 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 /


Powered by Blogger