Ragnheiður P
VERKEFNI VERKEFNI VERKEFNI.....
Erum búnar að vera á fullu í raunhæfa verkefninu enda skil í lok dagsins í dag, þá verður s.s. fyrsta hluta verkefnisins lokið en það er NÓG eftir !!!
En nóg með það, hitti Önnu í bænum á laugardaginn og við fórum á Hverfis.. það var alveg brálæðislega mikið af útlendingum þar, einn var líka í voða fínni úlpu (svona blárri útivistarúlpu) okkur Önnu langaði helst að verða okkur út um slíka flík enda tilvalin á djammið. Þrátt fyrir fjölskúðlegheitin á pöbbnum tókum við netta sleiflu og höfðum bara gaman af :) Takk fyrir kvöldið
Anna mín.
Síðan hitti ég HR-skvísurnar á Vegamótum og tjúttaði aðeins með þeim þar til ég fékk nóg og vildi bara fara heim í kotið mitt :)
Þangið til næst...
Þá er hópurinn minn byrjaður á fullu í verkefnavinnunni, við þurfum að skila fyrsta þættinum á þriðjudaginn kemur, omg ! En ég bind vonir um að þetta gangi bara vel hjá okkur, það voru smá þreyfingar í dag og svo er það bara harkan sex.
Ég, Anna og Stebba fylgdumst með ungfrú Reykjavík áðan, merkilegt nokk þá gekk showið mjög vel fyrir sig og var hún búin fyrir 12 (gott þar sem ég er alltaf svo helvíti kvöldsvæf) Annars var ég mjög sátt við úrslitin, enda spáði ég þessu fyrir. Ætti kannski bara að bjóða mig fram í dómnefnd að ári liðnu, humm :)
Annað kvöld verður svo tekið með stæl, er að fara partý til Írisar þar sem aðalskvísur HR munu lyfta sér upp í bleiku dressunum sínum. Annars er ég nú ekkert mikið fyrir bleikt og þarf því sennilega að pína mig í eitthvað "bleikt" og vera samvinnuþýð, annað gengur nú ekki !
Þetta er rosalegt, prófaðu !!!
1.Horfðu á punktana fjóra í svona 30.sek
2.Horfðu síðan á veggin.
3.Blikkaðu augunum í sinnum þar til þú sérð hvítan hring
4.Halltu áfram að horfa á þennan hvíta hring sem kemur og þú sérð?
Þetta er ekkert smá wird :)
Eitt próf komið í höfn, en einkunnin er samt alls ekkert til að hrópa húrra yfir !
Próflokadjammið í Nauthólsvík var algjör snilld. Þar sem ég elska grillmat lét ég pre- grillveisluna ekki fram hjá mér fara, lagadeildin bauð okkur s.s. í grillveislu áður en partýið byrjaði. Mætingin var mjög góð og tóku fyrsta árs og annars árs laganemar þátt í þessum fögnuði. En eins og alltaf þá fer ég alltaf fyrst heim, ég vill samt ekki meina að ég sé lélegur djammari. meika bara ekki að vera marga kllukkutíma á sama staðnum með sama fólkinu :)
Ég leyfði mér svo að sofa út í gær í fyrsta skiptið for a long time !!! Ohh... hvað það var ljúft :) Fór svo í keflavíkina og kíkti aðeins á framkvæmdirnar heima, það er verið að taka eldhúsið í gegn, það verður sko voða fínt. Fór svo í klippinguna langþráðu, uff það var liðinn alltof langur tími. Brunaði svo í bæinn og lenti þar í rosalegri taffik það voru alls staðar slys og löggi að beina manni aðra leið, en á endanum komst ég loksins heim í kotið mitt :)
Próflokadjamm !
Jæja jæja, þá hefst bloggerý´ið á ný. Var að ljúka mínu síðasta prófi í dag, refsiréttur, og held það hafi gengið alveg ágætlega. Ég held líka að ég sé komin með skammtinn í bili af refsirétti, því á þessu sviði er að finna miður skemmtilega dóma. En allavega verður maður var um sig í framtíðinni því að það er mikið af vondu fólki þarna úti, eða allavega klikkuðu. ´
Í tilefni af því að ég lauk prófatörninni minni þetta vorið þá fór í bæinn og keypti mér sundbol, það var sko alveg kominn tími á það, hefði alveg eins getað sleppt því að vera í sundbol ef ég ætlaði í gamla bolinn.
Auðvitað varð ég að prufukeyra hann í dag og fórum við Steini því í vesturbæjarlaugina og tókum smá sundsprett, ásamt svona 30 öðrum, skólasund og allir á öllum, ekkert rosalega aðlaðandi !
Í kvöld er svo próflokadjamm hjá laganemum, byrjað á barbeque og síðan er eitthvað tjútterý ! Loksins get ég slett létt úr klaufunum :)