Ragnheiður P
Alltaf nóg að gera hjá minni...
Vaknaði fyrir allar aldar og fór í klukkutíma hressingargöngu, vá hvað ég var hress þegar henni lauk :) Ég verð nú bara að eyða nokkrum orðum í að dásama okkar yndislega land. Ég labba oftast meðfram Ægisíðunni og inní Skerjafjörðinn og þaðan inn í Nauhólsvík svo framhjá BSÍ, það tekur mig um c.a. eina klukkustund. Það var einn morguninn í vikunni þegar ég fór í gönguna mína og úti var logn, þó nokkuð hlýtt og mesta þoka sem ég hef á æfi minni séð. Ég sá ekki einu sinni sjóinn þegar ég labbaði göngustíginn inn í Nauthólsvík, heyrði bara í honum, þetta var alveg geggjað :) þið haldið sennilega að ég sé að tapa mér en þetta er bara það sem gefur lífinu gildi !
Fór á framboðsfund í dag í skólanum, líst bara nokkuð vel á frambjóðendur og hef nú þegar tekið afstöðu um hverja ég ætla að kjósa. Var upp í skóla í annan dag að glósa í Evrópuréttinum, hins vegar braut ég upp daginn með því að hitta góða vinkonu mína hana Stebbu og sóluðum við okkur aðeins í góða veðrinu :)
Annars er það að frétta að það styttist óðum í fyrsta lokaprófið mitt. Fer í munnlegt próf í Evrópurétti 1. eða 2. apríl, er samt ekki alveg að átta mig á því að það sé að koma að þessu, er bara enn í tjillinu !
Ég vill líka benda á það að það eru síðustu forvöð að kíkja í vísó núna á fös.... Vísindaferð föstudagsins verður í hinum svo góða banka "Íslandsbanka", og verður mín jú þátttakandi í slíkri ferð ;)
Þangað til seinna, bæjó.
Það er vatn á Mars !
Alveg hreint merkilegt, ekki satt :)
Fór í vísó á föstudaginn eftir mjög efiða viku og nætur vegna miðannarprófs í Evrópurétti á föstudaginn. Held samt að mér hafi gengið ágætlega, allavega betur en í fyrra prófinu þar sem ég rétt slefaði til að ná.
Meira um vísindaferðina...
Rútukallinn byrjaði á því að gera það gott í ferðinni, hann festi helvítis rútuna á bílastæði skólans, vorum alveg pikkföst, hann endaði svo á því að keyra rútuna "ok við erum að tala um rútu" inní port skólans. Ég var alveg orðin sveitt af áhyggjum yfir því að við myndum enda inní skólabyggingunni eða reka bílinn utan í einhvern bíl eða jafnvel bara fína blómabeðið í portinu. En þetta hófst að lokum, það verður bara að vara rúturnar við því að fara inná þetta bílastæði því það er algjört "hell".
Fórum að heimsækja varnarliðið, fengum að kynnast starfsemi hersins og Friðþór Eydal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, var guide´inn okkar upplýsti okkur og fræddi um sögu hersins frá 1918 til dagsins í dag. Við fengum m.a. að sjá hermann í fullum kæðum, helvíti massaðar þyrlur og orustuþotur.
Síðan var ferðinni heitið til sýsla á Keflavíkurflugvelli. Jóhann Benediktsson, sýslumaðurinn sjálfur, hoppaði inn í rútu og vildi byrja á því að segja frá embættinu og sérstöðu þess. Fengum svo að skoða hreysið þ.e. aðstöðu þeirra þarna í Grænás og kíktum svo á skotæfingu lögreglunnar.
Lokaviðkomustaður var svo Flugstöðin, þar hittum við Kára og félaga í tollinum. Hundurinn hans Simma sýndi okkur svo listir sínar við að þefa uppi fíkniefni í ferðatösku. Það sem kom mér dáldið á óvart var að svona hundar hafa 6000 sinnum betra þefskyn en við mennirnir !
Vísindaferðinni lauk svo í Cocktail út í suðurbygginu á flugstöðinni þar sem boðið upp á veglegar veitingar.
Góður :)
Jæja þá er mín komin heim frá Brussel og alvaran tekin við, er núna upp í skóla að glósa í Evrópurétti, VEI !
Ferðin var geggjuð og hef ég sjaldan upplifað aðra eins djamm/ námsferð ;) Þeir sem vilja einhver details úr ferðinni skulu bara slá á þráðinn, I´ve got plenty !!!
Þið getið séð einhverjar myndir frá ferðinni á heimasíðu
lögréttu :) Endilega tjekk it out !