Ragnheiður P
Það styttist óðum í Brussel ferðina, fer á þriðjudaginn kemur :) jibby jibby !
Fór í Vísó á föstudaginn til Lex- lögmannsstofu, fengum c.a. 5 mín. kynningu á fyrirtækinu (ef það var svo langt) síðan vorum við ítrekað hvött til drykkju. Ég ákvað reyndar að vera edrú og missti því af vænum veitingum :)
Fjölskylduboð hjá mér á lau.. (þetta einu sinni á ári dæmi), finnst þetta alltaf jafn asnalegt eitthvað. Þetta eru s.s. afi og sistkin hans og afkomendur þeirra, þannig að þarna hitti ég þremenninga mína sem ég þekki varla í sjón en hitti alltaf í kaffiboði einu sinni á ári !!!
Síðan var partý hjá Stebbu vinkonu í gær, skemmti mér mjög vel þar til við fórum niður í bæ, drullukalt, endalausar raðir og drukkið skrýtið fólk !
Konudagurinn er í dag og er ég nú þegar búin að fá glaðning frá mínum ;) Takk elskan :)
Til hamingju með daginn girl´s :)
Samantekt helgarinnar
Sit inní kompu (eða skrifstofu) með maska í smettinu og er að reyna að skipuleggja lesturinn hjá mér. Kominn með ilmandi kaffitárskaffi á borðið og tilbúin að hefjast handa. Það fór mjög lítið fyrir lærdómi hjá mér um helgina því það er svo brjálað að gera hjá minni í the social life.
Saumó
Fór í saumó til
Dísu skvís á fimmtudaginn, mættum allar nema að sjálfsögðu
Begga sem er stödd í Köben og Rúna sem skrópaði :( En við hinar skemmtum okkur alveg rosalega vel enda ekki hægt að vænta annars þegar svona "elite" kemur saman :)
Vísó
Á föstudaginn fór ég í vísindaferð til
Logos (lögmannsstofu) hún var rosalega áhugaverð og skemmtileg. Að sjálfsögðu var boðið upp á vænar veitingar og laganemar og aðrir teknir á tal. Eftir þessa starfskynningu fórum við nokkrar skvísur úr bekknum út að borða á Madonnu, ég var mjög ánægð með matinn og rauðvínið var ekki af verri endanum ;) Tókum svo "taxi" í partý inní kópó... það var alveg ágætis stemning þar, ég stoppaði samt stutt enda busy woman, fór með
Önnu Ósk og Hjördísi í partý í Skerjagarðinum. Endaði kvöldið á Devidos... nammi namm :)
Laugardagur til lukku
Okkur Steina var boðið til heljarinnar veislu upp í Krumshólum í Borgarfirði, það var veiðiklúbburinn hans pabba Fugl & Fiskur sem efndi til þessarar veislu. Ég held ég hafi sjaldan bragðað jafn ljúffengan mat, þetta var þriggja rétta villibráðamáltíð þ.e. forréttur, aðalréttur og eftirréttur. En í forrétt voru 2 réttir og í aðalrétt voru held ég 6 réttir, þetta geggjað !!! Ég vill allavega þakka kærlega vel fyrir okkur :)
Sunnudagur
Hérna var punkturinn settur yfir i-ið. Enn og aftur vorum við svo lánsöm að vera boðið í mat, Snorri vinur hans Steina er 25 ára í dag og var
genginu boðið í grillað lambalæri með öllu í gærkveldi. Þetta var surprise veisla, Snorra var boðið í mat til foreldra sinna og þurftu þau næstum því að neyða hann til að koma því hann var svo upptekinn á hljómsveitaræfingu. Þegar hann mætti á staðinn var bara allt gengið inn í stofu og hann var að vonum mjög ánægður með það. Þetta var allavega mjög skemmtilegt og setur þetta óneitanlega pressu á félagana að slá þessari veislu við, sem verður þó ekki létt verk ;)
Ætla að enda þessa færslu á því að syngja afmælissönginn fyrir hann Snorra
Hann á afmæli í dag, hann á
afmæli í dag, hann á afmæli hann Snorri,
hann á afmæli í dag
Dagurinn minn :)
Átti alveg yndislegan dag í dag. Sótti
Önnu í skólann í hádeginu og við fórum og fengum okkur að borða á Grænum kosti, merkilegt hvað það er alltaf jafn gott að borða þarna, nema það að róan eða stóri appelsínuguli ávöxturinn var eitthvað undarlegur á bragðið hehe :) Tókum svo nokkra rúnta niður Laugarveginn og ég komst að því að ég er alveg drulluhrædd við strætóa, þeir eru stórhættulegir. Var næstum því búin að fara yfir á rauðu og stefna lífi okkar í bráða hættu bara af því að ég vildi ekki vera fyrir framan strætó á rauðu þar sem strætóljósið kemur fyrst (þú veist þetta hvíta). En nóg með strætó þeir geta líka verið skemmtilegir allavega finnst Önnu voða gaman að taka skrækó :) Skutlaði henni svo í litlu sætu búðina og fór heim að læra.
Hvernig er þetta með Reykjavík og sólbaðsstofur, reyndi eftir fremsta megni að finna sólbaðsstofu hér í grenndinni, fann svo eina hérna á Grandavegi (ekkert svo langt frá mér). En þegar ég tók rúnt og ætlaði að kanna málið betur fann ég ekki sjálfa stofuna, humm... var samt á Grandavegi. Kannski bara að þetta sé hint um að ég eigi ekkert að vera að fara í ljós, bara nota gamla góða brunkukremið. Í sannleika sagt þá er rúmt ár síðan ég fór síðast í ljós og finnst mér því allt í lagi að ég fari aðeins og fái mér smá freknur (finnst það
bara flott) :)
Ég er nú ekki þekkt fyrir það að vera einhver sjónvarpsglápari en miðvikudagskvöld eru samt mín sjónvarpskvöld. Eins og flest allar stelpur og "sumir strákar" þá fylgist ég að sjálfsögðu með America´s Next Top Model, ég var ekkert smá fegin að Robin datt út, hún er alveg drepleiðinleg greyið stelpan ! Held með Elyse, hún er ekkert smá flott model. Eftir þáttinn kom Sirry á skjáinn með sjónvarpsþáttinn fólk, ég fylgist mjög oft með þáttunum hennar og finnst þeir oft á tíðum mjög áhugaverðir.
Jæja nú er stelpan orðin þreytt og ætlar að hætta þessu blaðri.
Góða nótt kæru vinir :)
"hérna er grein sem ég rakst á á netinu, doldið fyndin :) "
Rauðhærðir ekki uppstökkari

Jón er í raun rólyndismaður, en kjánalegur.
Vísindamenn hafa komist að því að rauðhærðir eru ekki uppstökkari en aðrir. Gengur þetta þvert á það sem hingað til hefur almennt verið talið - að auðveldara væri að vekja bræði í rauðhærðu fólki og framkalla í þeim brjálæðisköst.
Við tilraunirnar mun hafa komið í ljós að það er helst að æðisköst hinna rauðhærðu virka skelfilegri "...enda urðu þau mun líkari skrímslum en við hin," segir Ellert Greipsson talsmaður vísindamannanna.
Hafa niðurstöður þessar valdið nokkrum titringi meðal rauðhærðra, enda glata þeir að mörgu leyti sérstöðu sinni vegna þeirra. "Sárabótin er þó sú að rauðhærðir eru eftir sem áður kjánalegri en aðrir," sagði Ellert að lokum.
Ps. Begga mín, þessi grein ætti nú að gleðja þig !
Einn skellur á rassinn og maður kemst í gang !!! Er búin að vera í einhverju algjöru tjilli síðan skólinn hófst núna í janúar. 6. vika er að nálgast og mér finnst sem ég hafi ekki lært neitt, damn ! Þetta er alveg rétt með pressuna, vinnutímarnir nýtast mér miklu betur þegar ég er undir pressu. Þar sem miðannarprófið í Evrópuréttinum nálgast óðfluga þá hef ég varla misst sjónar af kiljunum mínum ! Það er líka staðreynd með mig, að alltaf þegar ég fer í próf þá finnst mér efnið miklu áhugaverðara og auðskiljanlegra. Niðurstaðan mín er því sú að miðannarpróf eru
BARA af hinu góða :)
Keflvíkingar með tvennu !!
Til hamningju "Keflavík" með titlana :) Bæði Keflavíkurstúlkur og Keflavíkurstrákar urðu í kvöld bikarmeistarar í körfubolta, frábær árangur þar !
Hér að neðan er mynd af
lesblindum snillingum, MERKILEGT. Ég get rétt ímyndað mér, hvað sumir hafa þurft að leggja á sig til að geta fetað sig á framabrautinni, nefnum engin nöfn... "þið sjáið þau bara á myndinni" Tjekk this out !!!
Eignlega alltaf þegar ég ákveð að gera eitthvað (t.d. að fara út úr bænum) þá gerist það oftar en ekki að veðurguðirnir bjóða mér ekki það besta, skil ekki af hverju því mér finnst ég alveg eiga betra skilið :) Veðrið hefur verið alveg yndislegt undanfarna daga (plís... alltaf hægt að gera veðrið að umtalsefni hehe) nema hvað, í gær ákvað ég að panta mér tíma í klippingu í kef.. og heimsækja fólið mitt. Vaknaði snemma í morgun og ætlaði að klæða mig í pæjuföt, Steini fór út að ná í Fréttablaðið og þegar hann kom inn sagði hann "Ragnheiður, kíktu út um gluggann" Já vissi það, það var ekki svartan blett að sjá, tók þá upp jogginggallann og físpeysuna og uppdúðaði mig !
Brunaði í víkina strax eftir skóla og fyrsti viðkomustaður var hjá afa, hann er rosalega skemmtilegur kall, hefur alltaf frá svo miklu að segja :) Fór svo í hairmakeup og sinnti fleiri erindum. Mamma eldaði svo ýkta gott linsubaunabuff og með því handa prinsessunni sinni, þetta var alveg geggjað umm.. takk fyrir mig :) Kannski að mér finnist svona grænmetismatur svo góður af því að ég veit að það þýðir ekkert að bjóða mínum manni upp á neitt svoleiðis, hann vill bara kjöt á diskinn sinn !
Vel á minnst, held ég hafi skafað bílinn 4 sinnum í dag og stofnaði lífi mínu í mikla hættu með því að keyra brautina því það gerði hríð svo að mín sá ekki bofs :( Mæli ekki með snjó í svona miklum mæli !
Svo er helgin framundan, mun hún eingöngu fara í lærdóm því ég er að fara í miðannarpróf í evrópurétti á mánudaginn ! Kannski þó að ég líti eilítið upp úr bókunum og geri eitthvað áhugavert ;)
Hvernig er hægt að vera svona ótrúlega mikið utan við sig ? vaknaði greinilega alltof snemma í morgun, við vorum að taka upp á því að vakna fyrr á morgnana svo maður sé ekki alveg á fullu spani áður en maður fer í skólann. Gott að geta vaknað í rólegheitum, farið í sturtu, fengið sér morgunmat og lesið blaðið án þess að vera eitthvað að stessa sig á því hvað tímanum líði :) En nóg með það... byrjaði daginn á því að gleyma gleraugunum heima, sá ekki bofs í tíma, til þess að geta séð glærurnar þurfti ég að píra augun eing og eldgömul kella. Eftir skóla brunaði mín heim og þegar heim var komið gætti ég ekki þess að læsa bílnum, skildi hann s.s. eftir í "gettóinu" ólæstan. Síðan er það punkturinn yfir i´ið, fór niður í vaskahús áðan og setti í 3 vélar, það var svo sem ekkert athugavert við það nema að ég gleymdi að setja þvottaefni í "allar" vélarnar !!!!!!! HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ MÉR ??? hehe, held að svona kalkaðar kellingar ættu að fá sér smá miðdegislúr :)
Hvernig stendur á því að það eru alltaf tvær eða fleiri hliðar á öllum málum ? Það segir einn skoðun sína á ákv. málefni og svo kemur annar með einhverja allt aðra hugmynd um sama málefnið en bæði þessi sjónarmið eru fullkomlega réttlætanleg. Það er eins gott fyrir stjórnmálamenn og aðra sem eru mikið fyrir það að tjá sig í fjölmiðlum landsins að vera staðfastir á því sem þeir eru að segja því annars líta þeir ekkert sérstaklega vel út. Ég var bara að pæla í þessu í sambandi við umræðuna, um samkomu ríkisstjórnarinnar á 100 ára afmæli heimastjórnar Íslands, þegar Óli kallinn sagði að honum hafi ekki verið boðið í afmælið en svo segir Halldór að Óli hafi vitað af því og átti bara að mæta. En by the way.... hver mætir í afmæli án þess að vera boðinn í það ? Jú, boðflennur, kannski að Halldór sé einn af þeim sem mætir óboðinn í afmæli, hann er alveg þannig typa :)
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún mamma, hún á afmæli í dag.
Elsku mamma, til hamingju með daginn :)
Var að koma af fundi með Þórði Gunnarssyni,deildarforseta lagadeildar, og komst að ýmsu varðandi framtíð okkar laganema við HR. Við getum lokið fullnaðarnámi skv. nýja lagafrumvarpinu á 5 árum, s.s. 3 ára BA gráða og svo 2 ára mastersnám. Varðandi BA-gráðuna þá er ekki skylt að ljúka því með BA-ritgerð heldur eigum við þess kost að taka 5 sinnum 3. eininga val-áfanga. Reyndar finnst mér það rökrétt stefna, þar sem nemendur á þessu stigi í námi eru þess ekki fullfærir um að skrifa slíka ritgerð. Þess vegna er stefnt að því að auka kennslu í grunnnáminu til að undirbúa frekara nám. Þórður benti okkur á að ef við höfum hug á framhaldsnámi erlendis að skoða þá skóla sem við höfum áhuga á og sjá hvað þeir hafa upp á að bjóða. Ég er ekki ennþá búin að ákveða hvert ég stefni, en verð samt að fara að taka ákvörðun í því efni. Það vonandi kemur, annars hef ég áhuga á réttarfarinu og samningarétti. Aldrei að vita nema maður fari í frekara nám í samningarétti, þá með áherslu á erlendan markað. En hver veit, það er aldrei að vita nema maður skipti um skoðun á morgun eða hinn... :)
Jæja Steini er kominn og við ætlum að taka smá sunnudagsrúnt í veðurblíðunni.... (ekki varð nú mikið úr lestri mínum í dag) hehe
Þá er maður vaknaður eldsnemma á sunnudagsmorgni og námið æpir á mig. Er ekkert búin að vera alltof dugleg það sem af er önninni, ekki seinna en vænna að bretta upp ermarnar og hefjast handa. Fer í miðannarpróf eftir viku í evrópurétti þannig að það er eins gott að taka sér taki.
"You go girl" !!!
Ég get nú ekki sagt að ég hafi afrekað mikið á þessari annars löngu ævi minni :) en annars þá hefur maður bara eitthvað að gera í framtíðinni :) En ég hef dvalist í lengri eða skemmri tíma í þeim löndum sem eru rauðleit á kortinu !
create your own visited country map
or
write about it on the open travel guide