Fór í saumó til Rúnu á laugardaginn, mættum allar nema Begga danska og Hjödda pönk. Eins og vanalega var tekið upp saumadótið og byrjað að þræða nálina, er að sauma voða fínt rúmteppi sem... jeje, ekki alveg. Rúna bauð okkur upp á rosa góðan kínamat og köku í eftirrétt, umm... Sátum eitthvað fram eftir kvöldi og eins og vanalega var endalaust borðað, talað og hlegið :) Það var svo spáð rosalegu óverði um kvödið en ekkert rættist úr því og ég keyrði bara heim í Rkv. eftir saumó.
Sunnudagurinn fór svo bara í lestur, var líka að vinna að hópverkefni í skaðabótarétti, víví gaman ! Veit nú ekkert alveg hvort við vorum að gera réttu hlutina, en eins og svo oft áður kemur það bara í ljós.
Stebba vinkona á afmæli á morgun :) Fer því kannski í smá afmælisteiti annað kvöld, hver veit. Hún er allavega búin að lofa að baka mér köku, er þaggi Stebba ?? ;) Annars er alltaf svo gaman að sjá hana að ég það þarf enga köku til að lokka mig !
Næsta helgi er mjög annasöm hjá mér, fyrir utan það að þurfa að læra heilan helling, þá var ég að spá í að fara í vísindaferð á föstudaginn og á ættarmót á laugardaginn með Steina.
jæja best að hætta núna, ble..
Jæja núna er ég loksins búin í blogg "sumarfríi" ætla að reyna að herða á mér takinu og leyfa ykkur elskurnar mínar að fylgjast með hvað er að gerast hjá minni !
Er náttúrulega byrjuð á fullu í skólanum og kennararnir farnir að skella á okkur verkefnum í massavís. Vinnum ýmist í hópum eða einstaklingsverkefni, mér finnst bæði betra, auðvitað verður maður að geta unnið með öðrum og líka sjálfur, á þessu byggist þetta :)
Síðan skólinn byrjaði er ég búin að vera á stanslausi flakki um helgar. Fór fyrstu helgina í sept. til Víkur í Mýrdal með genginu hans Steina, í þetta sinn var ekkert þema eins og tíðkast í þessum árlegu ferðum. En ég skemmti mér vel og var ekkert mikið að kíkja í bækurnar, enda bara ein vika búin af skólanum.
Fyrir tveimur vikum fórum við í Krumshóla, þar var sko rosa fjör. Fengum stóra húsið og gerðum gott betur og fylltum húsið af eiturhressu fólki. Fullt af góðum mat, víni og úrvals fólki. Þessi helgi fékk 10 í einkunn frá minni :)
Var svo bara heima síðustu helgi og kíkti út á lífið með Stebbu á laugardagskvölið.
Núna er mín stödd í heimabænum Keflavík og er að fara í saumó á morgun, LOKSINS LOKSINS. Síðasti saumó var í maí, hu humm....
Var að koma frá Stebbu þar sem við fylgdumst með fyrsta Idol þættinum, ansi góð skemmtun það. Eitt komment samt "það var ung stúlka sem söng eins og engill, ég fékk meira að segja smá gæsahúð, komst ekki áfram vegna þess eins að hún var 16 ára!!! Hvað á það að þýða, ekki góð rök, hvernig væri þá bara að hækka aldurstakmarkið ???
Jæja núna verð ég að hætta enda kallar rúmið, góða nótt !