<$BlogRSDURL$>
Ragnheiður P
fimmtudagur, ágúst 14, 2003
  Alveg er þetta rétt hehe.... tók þessa grein af femin.is Tjekk it out !!!

Á mörgum heimilum er það þannig að eina matreiðslan sem hinn "sanni" karlmaður tekur sér fyrir hendur er að standa við grillið; í kvöldsólinni og með bjór í hendi. En þegar hann býðst til að taka til starfa við grillið tekur við óhjákvæmileg röð atburða...

1. Konan fer í búðina.

2. Konan útbýr salatið og eftirréttinn.

3. Konan undirbýr kjötið fyrir hamskiptin, leggur það á disk með nauðsynlegum útbúnaði og færir það manninum sem stendur hnarreistur við grillið drekkandi bjór.

4. Maðurinn leggur kjötið á grillið.

5. Konan fer inn fyrir og leggur á borð og aðgætir meðlætið.

6. Konan fer út til að láta manninn vita að kjötið er að brenna.

7. Maðurinn grípur kjötið af grillinu og réttir konunni.

8. Konan leggur síðustu höndina á aðalréttinn og leggur hann á borðið.

9. Þegar allir hafa matast tekur hún af borðinu og þvær upp diskana.

10. Maðurinn spyr konuna hvort hún hafi ekki notið þess að fá "kærkomið frí" frá matseldinni.

Og samkvæmt viðbrögðum konunnar leggur hann út frá þeirri viðteknu skoðun karlmanna að ómögulegt sé að gera þessum konum til hæfis!

"Það er alveg mikið til í þessu, er þaggi ???" ;) 
laugardagur, ágúst 09, 2003
  Unginn á afmæli í dag, til hamingju með afmælið Eyþór minn. Drengurinn er orðinn 15 ára og við erum að tala um þvílíkan ungling :) Mamma ætlaði að hringja í hann áðan en hann gleymdi símanum sínum heima og þegar síminn hringdi birtist á skjánum "pain in da ass" hehe mér fannst það bara fyndið. En hann er samt besta skinn !  
föstudagur, ágúst 08, 2003
  Verslunarmannahelgin...

Tók þá snjöllu ákvörðun að fara út úr bænum þessa helgina, skellti mér á Bindindismót í Galtalæk með familyunni. Lögðum af stað seinni partinn þegar mamma var búin í vinnunni, unglingarnir fylgdu með (Eyþór bróðir og Arnar). Ég stakk strax uppá því við pabba að gefa aðeins í þegar við vorum komin í Rangárvallarsýsluna, hann vildi nú ekki taka þátt í því :) Dóri og Íja, vinafólk mömmu og pabba, var mætt á staðinn þegar við komum, þau vísuðu okkur leiðina að tjaldsvæðinu okkur þ.e. "Laugarveginum". Já við vorum sko í mesta fjörinu, á unglingasvæðinu, meðan unglingarnir tjölduðu á fjölskyldusvæðinu, já ekki spurja af hverju. Þetta stæði var víst tekið frá fyrir okkur, en óhætt er að segja að mesta fjörið hafi verið þar sem við vorum, bara no stop. Svaf alla helgina með eyratappa í eyrunum, þrátt fyrir það heyrði ég geðveik læti fyrstu nóttina og þegar ég leit út um gluggann á tjaldinu sá ég lögguna vera að járna einhvern brjálaðan mann beint fyrir utan tjaldvagninn okkar.

Hekluganga...
Fyrsta alvöru fjallgangan mín var fjallganga á Heklu á laugardeginum. Veðrið var alveg meiriháttar og útsýnið því stórkostlegt, hef sjaldan upplifað annað eins. Þegar við lögðum af stað upp á fjallið var hitastigið 20 gráður en þegar á toppinn var komið (1491 m. hæð) var hitastigið komið niður í 5 gráður. Gangan tók um 4 klukkutíma og enduðum við í lauginni á Laugalandi. Grill, geggjuð flugeldasýning og Írafár um kvöldið. Stemmning !

Steik á sunnudeginum
Tók rúnt niðrá Hvolfsvöll til að kíkja á gæjann á sunnudeginum. Veðrið var geggjað, fórum rúnt um sveitirnar og stoppuðum aðeins á Tómasarstöðum og fengum okkur göngutúr um skóginn. Dagurinn var mjög skemmtilegur, tók svo einhverja puttalinga uppí á heimleiðinni.
Um kvöldið var grillveisla með öllu tilheyrandi, fórum svo öll saman niðrá svæði og tjúttuðum við "Í svörtum fötum". Helgin var alveg meiriháttar í alla staði og vil ég þakka kærlega vel fyrir mig, kiss kiss :) 
Fyrir þá sem ekki vita en eru mjög forvitnir þá er þetta bloggið hennar Ragnheiðar. Ég er 22. ára Keflavíkurmær sem stunda nám við Háskólann í Reykjavík og bý því nú á studentagörðunum. E-mail og msn: ragnheidur81@hotmail.com

Gestabókin mín

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

Skemmtileg blogg
Anna Ósk
Dísa skvís
Begga
Hjödda
Alda
Sirrý
Anna Alberts
Birna Rún
Gutti
Járnskvísan

Gamalt og krafsandi
07/01/2002 - 08/01/2002 / 08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2002 - 10/01/2002 / 10/01/2002 - 11/01/2002 / 11/01/2002 - 12/01/2002 / 12/01/2002 - 01/01/2003 / 01/01/2003 - 02/01/2003 / 02/01/2003 - 03/01/2003 / 03/01/2003 - 04/01/2003 / 04/01/2003 - 05/01/2003 / 05/01/2003 - 06/01/2003 / 06/01/2003 - 07/01/2003 / 07/01/2003 - 08/01/2003 / 08/01/2003 - 09/01/2003 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 /


Powered by Blogger