Ragnheiður P
Helgin sem leið...
Veðurguðirnir voru í mjög góðu skapi um helgina og létu sólina skína og settu Kára í frí :) Fór í bæinn á föstudaginn með
Beggu og
Stebbu, fórum niðr á Austurvöll og sátum þar í grasinu og létum fara vel um okkur. Breskur galdramaður lék listir og heillaði fólkið með hæfileikum sínum. Gítarglamur og söngur einkenndi stemninguna á Austurvelli þennan daginn. Við fórum svo út að borða á Pizza Hut um kvöldið.
Fór í sund á laugardaginn til að fá smá lit á kroppinn :) Um kvöldið fór ég í matarboð til tengdó, hitti þar Brusselbúa (Einar, bróður Steina og fjölskyldu). Maturinn var geggjað góður, takk fyrir mig !
Eftir matarboðið var haldið í partý í Kribbinu, ég skemmti mér rosalega vel, var driver ásamt
Dísu skvís ! Fórum frekar snemma í bæinn sem var mjög gott því við þurftum ekki að bíða í neinni biðröð. Skemmtistaðurinn Sólon varð fyrir valinu, DJ Svali snéri skífum, og gengið dansaði í takt ! Fékk síðan nóg um 3 og fór þá smá rúnt með Dísu, stuttu seinna var brunað í víkina.
Sunnudagurinn var meira svona chill dagur hjá mér, ég og Stebba kítum í afmæliskaffi til
Ásdísar, hún á afmæli í dag. Til hamningju með daginn skvís :)
Síðan var smá áfangafagnaður heima um kvöldið, pabbi er búinn með fyrsta áfanga viðbyggingarinnar, hann er svo duglegur kallinn !!! Af því tilefni var grillað og borðuðum við úti á "pallinum" ef svo mætti kalla :)
Fór svo í afmæli um kvöldið til afa Jóns, hann var sjötugur á fimmtudaginn.
Steini hafði orð á því að ég ætti að fá mér svona "social events calendar" ég er ekki frá því að ég eigi að halda slíka dagbók, hehe ;)
Þetta er ekki í fyrsta, ekki annað, heldur í þriðja skiptið núna á stuttum tíma sem ég vakna eldsnemma um morguninn við það að einhverjir vinnumenn séu að bora eitthvað. Af hverju geta þeir ekki bara haft þessi læti aðeins seinna en klukkan 8 um morguninn ??? Svo þykjast þeir vera búnir kannski um 10 ! Þeir gætu nú alveg geymt þessi læti eitthvað fram eftir morgni, svo að svona prinsessur fái nú einhvern svefn ;)
Steini kom í víkina á sunnudaginn og mamma bauð uppá rosalega góða purusteik, jammy jamm :) Ég efast heldur ekki um það að mamma er einn besti kokkur sem ég veit um ! Vorum svo í bænum í gær eitthvað að stússast, fórum svo á hina geysimögnðu Charlies angels með Snorra og Siggu. Þessi mynd er alveg ágætis afþreying ég neita því ekki, þó að ég sé nú kvenkyns ;) Strákarnir héldu vart vatni yfir þessum kroppum, hehehe, kannski skiljanlegt :)
Ég og
Stebba gerðum alveg svaka kaup í kef í dag, keyptum okkur rosalega pæjujakka :) Kíktum á þær systur,
Önnu og Södru, áðan og tókum svo smá rúnt í góða veðrinu. Takk fyrir kvöldið girly´s ;)
Svo er bara vinna morgun og hinn og svo helgarfrí, jibby jibby :)
Heimsins stærsti krakki !!!
Þetta er nú meiri viðbjóðurinn..... Við erum að tala um það að þessi krakki er 4 ára og hann er hvorki meira né minna en 56 kg. Hvernig er hægt að elska barnið sitt svo lítið að leyfa því að líta svona út ? Svo er þetta líka stærsta barnið í heiminum, greyið litla (eða stóra). Horfði á fréttirnar í gær þar sem krakkinn var að leika glímu og þegar hann datt þá þurfti fullorðinn mann til að reisa hann upp !!! Þetta er sko langt því frá að vera eðlilegt ! Svo var hann verðlaunaður með ís eftirá, hversu langt á þetta að ganga ???
HÚSAFELL 2003 !!!
Fór í Húsafell með
Stebbu og Ingvari um helgina. Spáin var mjög góð enda var spáð besta veðrinu á landinu í Húsafelli. Sólin skein skært á okkur alla leiðina eða þar til við nálguðumst áfangastað, þá gerði líka þessa hellidembu. Mamma hringdi akkurat þá og ég átti í mestu erfiðleikum með að heyra í henni vegna þess að rigningin skall svo hart á bílinn :( mamma kom líka með þá tilkynningu að það væri geggjað veður í Höfnunum, humm.... var spáin enn að gera gis í fólki ??? Við tjölduðum reyndar í þurru en svo byrjaði aftur að rigna. Fórum út að borða á kaffihúsinu þarna, fengum okkur geggjað kjúklingasalat, það var meira að segja betra en salatið á Duus. Síðan var bara hellt í sig nokkrum köldum og Stebba bauð okkur upp á smá Amarula, rosalega gott :) Kósý stemmning og rólegheit svona fyrsta kvöldið.
Vöknuðum í algjöri steik, 17. stiga hiti í Húsafell. Byrjuðum daginn á því að kíkja í sundlaugina í veðurblíðunni, fengum sól á kroppinn. Grilluðum okkur svo "burgera" meðan við biðum eftir Atla og Begga. Þegar þeir komu tókum við smá rúnt. Skoðuðum meðal annars Surtshelli og Barnafoss. Ég, Atli og Beggi vorum miklar hetjur og gengum hellinn alveg út í enda, þá upplifði ég tilfinningu blinda mannsins, sáum ekki jack !!!! En við komumst heilu og höldnu upp úr hellinum :) tók bara fimleikana á það.
Strákarnir tjölduðu í einhverju rjóðri þar sem við eyddum restinni af deginum, Gunni og Elín komu svo seinni part dags og joynuðu okkur. Byrjuðum snemma á bjórnum (Citernum :) ) svo var grillað og haldið uppi góðri stemmningu þar til varðeldurinn byrjaði. Röltum að Hátíðarlundi þar sem varðeldurinn fór fram og settumst í brekkuna og tókum undir sönginn með hljómsveitinni. Ég og Stebba stungum svo af og færðum partýið okkar inní hústjaldið okkar. Krakkarnir komu svo stuttu seinna og þá var fjörinu haldið áfram langt fram eftir nóttu. Þar sem að við höfðum tjaldað í fjölbýlishúsahverfi (ekkert nema fellihýsi og tjaldvagnar í kringum okkur) þá buðum við okkur í partý til næsta vagns við hliðina á okkur. Síðan var bara rölt á milli vagna, svona á þetta að vera.....
Brottför um 13:00, allir mjög sáttir eftir vel heppnaða útileigu í Húsafelli :)
Elsku Stebba og Ingvar, takk æðislega fyrir helgina :)
ALGJÖRT BRJÁLÆÐI !
Jæja þá er maður mættur aftur í vinnuna eftir smá vaktarfrí. Var vakin klukkan 3:00 am. í morgun, að maður skuli láti bjóða sér upp á þetta !!! Er núna stödd í Fríhafnarskemmunni, sem er mjög gott, því ég er svo rosalega þreytt :( svaf eiginlega ekkert í alla nótt !
Í tilefni af því að það var "payday" í gær og mín rosalega ánægð með lífið fór ég í bæinn með
Stebbu, við byrjuðum á því að kíkja í Smáralindina, útsölurnar voru að byrja :) Keypti mér tvennar peysur, einn bol og undirföt, rosaleg pæja :) Hittum
Ingibjörgu og fórum allar saman á kaffihús og fengum okkur kaffi og með því.
Ég og Stebba kíktum svo aðeins til tengdó, alltaf jafn gaman að sjá þau ! Takk fyrir konfektið Inga mín :)
Enduðum bæjarferðina á því að kíkja til mömmu hennar Stebbu, mjög langt síðan ég sá hana síðast, en Sirrý lítur alltaf jafn vel út !
Ég fór svo bara snemma í háttinn en það tók mig alla nóttina að reyna að ná smá svefni, endaði á því að horfa á einhverja dvd mynd (Entrampment) sem við erum með í láni.
Hlakka mest til að komast í helgarfrí, ætla sennilega að skella mér í eitthvað ferðalag með Stebbu, Ingvari og félögum :) Steini kemst því miður ekki með því það verður brjálað að gera hjá honum um helgina, enda ein mesta ferðahelgi sumarsins. Hann kemur bara með næst ! :)
Hafið það gott nú gott og njótið sumarsins....