Ragnheiður P
OF FEIT FYRIR MIG !
Hvað hefur það gerst oft, að maður er búinn að blogga ýkt mikið þegar blogger.com neitar að setja inn færsluna og eyðir henni bara ??? Óþolandi, en ég er búin að ákveða að alltaf þegar ég skrifa eitthvað þá ætla ég fyrst að save-a áður en ég posta :) þá ætti ekki neitt að klikka hjá mér.
Gerði ýmislegt skemmtilegt í síðustu viku. Fór í bæinn á þriðjudaginn strax eftir vaktina og var boðið í silung til tengdó, ummm geggjað gott. Ég og Steini tókum svo spólur um kvöldið,
Trapped og
Jalla Jalla (alveg ágæt sænsk mynd ), og auðvitað var keypt smá nammi, það bara verður þegar maður tekur spólu, s.s. allt í lagi fyrir fólk sem tekur bara spólu einu sinni í viku :)
Fórum í "Kópavogsræktina" á miðvikudeginum, var voða dugleg og synti nokkrar ferðir. En omg ég sá tvær gellur sem voru alveg rosalega stórar, ég er að tala um 150+, þetta var rosalegt, vissi ekki að þetta væri til hérna á Íslandi !!! Fórum í bíó um kvöldið með
Stebbu og Ingvari, fórum að sjá Identity, hún var mjög góð að mínu mati. Bjóst reyndar ekki við því að þetta væri svona bregðumynd ;) Takk fyrir kvöldið Stebba og Ingvar :)
Fimmtudagurinn fór bara í tiltektir og hreingeringar því íbúðin á Eggertsgötunni verður leigð út í júlí og ágúst. Kíktum með grillið til
Gutta og
Birnu um kvöldið, og borðuðum þennan fína grillamat, enda snilldarkokkar á ferð ;). Mjög skemmtilegt kvöld, þetta verður sko endurtekið í haust þegar við flytjum aftur inn :) er þaggi ? Takk fyrir kvöldið Birna og Gutti :)
Steini skutlaði mér svo í keflavíkina á fös... enda vinnuhelgi hjá mér.
Nóg í bili, bæjó !
Jæja þá er langþráða helgarfríið mitt á enda, það var sko ekki slappað af um helgina, heldur var tekið á því !!! Sótti mömmu og pabba á flugvöllinn á lau... ohh hvað það er gott að fá þau heim. En mig er farið að gruna eitthvað því frá því ég flutti heim í sumar, þá hafa þau stanslaust verið eitthvað á ferðalagi, hummm.... ætla samt að vona að það sé ekki ég, það getur eiginlega ekki verið því ég er svo góð stelpa :)
Fékk far með
Hjöddu í bæinn um kvöldið, sóttum Rúnu og Einar á Hard Rock og mættum svo í partýið í "Kribbinu". Game-ið heppnaðist mjög vel, það leyndi sér sko ekki. Ölvunin var mikil á fólkinu, en kannski mismikil. Held að
Anna hafi misst af afmælinu sínu, ég sá hana allavega ekki mikið um kvöldið.
Stebba mætti svo í feikna stuði um miðnætti og þeytti skífur eitthvað fram eftir nóttu. Gunni, nýji vinur hennar Önnu, var alveg að meika það, hann var alveg rosalegur, var næstum því búinn að stúta sjálfum sér því maðurinn stökk fram af svölunum !!! WHY ??? Nei, það veit enginn af hverju ! Fengum svo skutl í bæinn og fórum á Felix, tók snúning á dansgólfinu með Önnu, Gunna, Einari og Rúnu. Tók svo röltið heim í nýju skónum, var þokkalega þreytt þegar ég kom heim, en sátt eftir mjög skemmtilegt kvöld.
Sunnudagurinn fór bara í þvinku dauðans... fór í hressingargöngu um kvöldið og fór svo snemma í háttinn enda mætt í vinnu kl. 5 í morgun.
Steini kemur í townið í kvöld, hlakka rosa til að fá hann :)
Bæjó !!!
Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Anna, hún á afmæli í dag :) Elsku Anna mín, til hamingju með daginn !!!
Er að fara að taka á móti mömmu og pabba á eftir, þau eru að koma heim frá Barcelona, hlakka SVO til að fá þau heim :) Fer svo í afmælispartý í "Kribbinu" í kvöld, það verður svaka stuð.
Stebba verður að sjálfsögðu DJ enda búin að vera að skrifa geggjaðan djammdisk :)
Verð líka að nota tækifærið og óska Rúnu og Einari til hamingju með 1. árs brúðkaupsafmælið (pappírsbrúðkaup) :)
Ég bara varð að fá að vita það :)

You have a surprise kiss! Your partner is always
pleasantly pleased to have you jump outta no
where to dote them with a fun peck on the cheek
or more passionate embrace. super markets and
work places are your favorite places to attack
your loved one with all your love =p
What kind of kiss are you? brought to you by Quizilla
Erfiður krakki !
Ég er alveg að bilast á að vera að "passa" þennan krakka, er sko komin með meira en nóg af uppeldishlutverkinu. Ég held að hann haldi að diskarnir vaski sig upp sjálfir ef þeir eru bara geymdir nógu lengi í vaskinum, maturinn fari sjálfur aftur inn í ísskáp og að fötin fari sjálf í óhreinataugið þegar þau eru búin að liggja lengi á gólfinu. En ég þarf víst bara að búa við þetta í nokkra daga í viðbót, þá taka mamma og pabbi við uppeldishlutverkinu !
Vaktarfríið mitt var annars mjög fínt fyrir utan allt tuðið sem ég þurfti að eiga við krakkann. En satt best að segja þá er hann ekki alslæmur, hann á það til að vera mjög góður strákur, er bara ekki búin að sjá þá hlið í nokkurn tíma :)
Svaf í bænum í nótt, grilluðum í gær heima hjá Andra og Mörtu og fórum svo í góðan göngutúr. Steini fór austur snemma í morgun, en ég gat sofið aðeins lengur. Ég og
Anna fórum svo að slæpast í bænum, keypti mér skó í Bossanova, geggjað flottir :) Fengum okkur svo kaffi á Café blue, takk fyrir daginn Anna mín :)
Er komin í smá frí :)
Loksins er ég komin í smá frí, var að klára helgarsyrpu (dagvakt)! Brunaði í bæinn strax eftir vaktina heim til "tengdó" þar sem ég hitti Steina minn. Okkur var boðið í kjúlla og með því, ummm alltaf jafn gott að borða kjúkling.
Hitti aðeins Beggu og Önnu, verð nú að viðurkenna að þær voru nokkuð sjúskaðar eftir helgina, hehehe, svona verð ég eftir næstu helgi ;)
Tókum spólur í gær og keyptum okkur nammi, horfði á Red Dragon, fannst hún nokkuð góð þrátt fyrir mörg óhugnanleg atriði !
Í dag ætlar skvísan að fara í smá verslunarleiðangur í bænum, verð að fara að finna einhver föt á mig, þetta gengur ekki lengur. Held að ég hafi ekki keypt mér flík frá því að ég byrjaði í skólanum, haustið 2002 :( Ætla sko að reyna að bæta úr því í dag ;) Djö... hlakkar mig til !!!
Jæja þangað til næst.... bæjó :)
Aaarrrrrggggggggg..... FLÓABIT !!!
Hvernig stendur á því að ég verð alltaf bitin ??? skil þetta ekki, var um daginn með eitthvað bit á mjöðminni og svo núna á öklanum, klæjar ekkert smá :( Ég veit ekki hvar þessa fló er að finna, en hún er allavega voðalega hirfin af mér !
Var rosalega ánægð í gær því ég fékk aukavinnu allan daginn, var bara að tjilla í fríhafnarskemmunni frá 8-17 :) Fór svo í búð með ungann og við elduðum okkur spagetti, svei mér þá ég eldaði svo mikið að ég held að ég geti bara lifað á þessu þar til mamma og pabbi koma heim ;)
Kíkti smá rúnt með Önnu um kvöldið, hún og Begga ætla víst að skella sér norður um helgina á sumardjamm fm 95,7 ég væri nú alveg til að fara með þeim, en neinei ég er að vinna um helgina !
Hafið það nú gott um helgina, l8er :) kiss kiss
Váá geggjað veður mar....
Er í fríi í dag og á morgun :) Var rosa dugleg í dag, þreif húsið mitt hátt og lágt, enda alveg kominn tími á þrif hér á bæ !!! Fór svo í sundlaugina í bikiníinu mínu til að fá smá lit á kroppinn ;) tók svo smá sundsprett !
Stebba kíkti svo á mig og við fórum til Rúnu og Einars litla, ohhh.... hvað hann er rosalega myndarlegur strákur :) (væri nú alveg til í að eiga svona lítið kríli) en það má bíða betri tíma :) Tók svo bílinn í gegn, alltaf lendir það á mér að þrífa þennan bíl, humm... hvernig stendur á því ???? en það er s.s. ekkert svo leiðinlegt því hann er svo helvíti flottur þegar það er búið að taka hann í gegn. Bauð svo Stebbu á rúntinn í keflavíkinni um kvöldið, hittum
Önnu, Söndru,
Ingibjörgu og Helgu. Hitti ungann í fyrsta skiptið í dag, er búin að vera að passa hann síðan á lau.. mamma og pabbi skruppu nebbla til Barcelona ! Þau koma heim eftir tæpar 2 vikur, þannig að ég verð að leika húsmóður þangað til þau koma heim, ég er líka að standa mig alveg með príði :)
Jæja þá er ég alveg að komast í gírinn fyrir sumarið, fór líka á þetta rosalega námskeið sem stóð yfri í 4 daga. Lærði allt um öryggisgæslu og tollvörslu á þessu líka fína námskeiði, það var meira að segja lokapróf, verklegt og skirflegt ! hummm... segi ekki meira :) Annars átti ég nú að vera í fríi um helgina en námskeiðinu lauk ekki fyrr en á lau.. þannig að ég komst í frí seinni part lau..
Ingibjörg vinkona átti afmæli á sunnudaginn, til hamingju skvís ;) Kíkti aðeins í afmælispartýið í kribbinu, en var ekki í fýling fyrir neitt djamm ! Annars er afmælið hennar Önnu framundan og verð ég því að standa mig vel, því það verður sko tekið á því þá !!!!
Jæja loksins sest ég niður til að skrifa eitthvað á bloggið mitt. Er búin að vera í svo góðu fríi undanfarið að ég hef ekki einu sinni gefið mér tíma til að setjast fyrir framan tölvuna. Er búin að ferðast um suður- og austurlandið og búin að hafa það rosalega gott, just unbeliveble ! Byrjuðum á því að heimsækja Stebbu og Ingvar upp í bústað í Munaðarnesi, það var geggjað stuð og við fengum alveg frábært veður. Fórum svo í Brekkuskóg, bústað Bíliðnafélagsins, og vorum þar í tæpa viku. Snorri og Sigga komu til okkar eitt kvöldið og grilluðu með okkur og kíktu í pottinn, það var rosalega gaman að fá þau. Síðan komu Jóhanna og Jóhann joynuðu okkur í grilli og potti og af því að þau eru alltaf svo stillt og góð, þá buðum við þeim gistingu :) hehe. Rúlluðum svo í bæinn og gistum þar eina nótt eftir dvölina í Brekkuskógi. Fórum svo til Víkur í Mýrdal "Eurovision helgina" með vinum hans Steina. Elduðum saman Tortilla veislu, ummm... og að sjálfsögðu var fylgst með keppninni, fórum að vísu í drykkjuleik og ég held að ég hafi ekki alveg verið að standa mig :( geri bara betur next time :) Upp úr miðnætti röltum við niður í bæ (ef bæ mætti kalla) og fórum á kaffihúsið, það var rosa fjör þar og ég fór alveg á kostum á dansgólfinu, er þaggi ? ;) Ég vill allavega þakka öllum þeim sem áttu þátt í því að fríið mitt var svona frábært alveg inniilega vel fyrir ALLT !!! Er núna mætt í vinnuna mína og er bara nokkuð sátt, tek næturvakt alla helgina, og by the way, er strax farin að sakna hans Steina míns :( hann er farinn austur að vinna, en kemur vonandi um helgina :) Jæja segjum þetta gott í bili, veriði sæl !