<$BlogRSDURL$>
Ragnheiður P
mánudagur, maí 05, 2003
  Helgin......
Á Föstudaginn fór ég út að borða með krökkunum úr skólanum sem eru að vinna verkefni með mér. Fórum að borða á Galileo, sem er ítalskur staður niðrí miðbæ. Vorum öll mjög ánægð með matinn, ég fékk mér kjúklingapasta og hvítvín með :) Þjónustan var til fyrirmyndar og umhverfið hlýtt og notalegt, mæli eindregið með þessum veitingastað !!! Eftir það var haldið heim til Hönnu Dóru og sátum við heima hjá henni eitthvað fram eftir nóttu og spjölluðum saman um allt milli himins og jarðar, en ég verð samt að viðurkenna að einn maður hélt nánast ekki kjafti allt kvöldið, rosalega hafa sumir mikla þörf til að tjá sig !!! Kíkti svo í bæinn um 2, byrjuðum á því að fara á Felix síðan Sólon. Var ekkert alveg að fýla miðbæinn þannig að ég tók röltið heim á háu hælunum :) enda var ég alveg búin á því þegar ég kom heim, ups ! Á laugardagskvöldið kíktum við Steini til Andra og Mörthu, en Finnur litli var sofandi :( En það er alltaf gaman að hitta Andra og Mörthu, við sátum hjá þeim eitthvað fram eftir kvöldi.
Sunnudagur... Mamma bauð mér og Steina í Þjóðleikhúsið að sjá Rakstur, leikritið var mjög skemmtilegt, og stóð frændi sig alveg með príði, eins og alltaf :) Elsku mamma, takk fyrir okkur ! Er núna mætt í skólann og núna tekur harkan sex við, verðum að skila þessu fullbúnu á föstudaginn !!!  
Fyrir þá sem ekki vita en eru mjög forvitnir þá er þetta bloggið hennar Ragnheiðar. Ég er 22. ára Keflavíkurmær sem stunda nám við Háskólann í Reykjavík og bý því nú á studentagörðunum. E-mail og msn: ragnheidur81@hotmail.com

Gestabókin mín

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

Skemmtileg blogg
Anna Ósk
Dísa skvís
Begga
Hjödda
Alda
Sirrý
Anna Alberts
Birna Rún
Gutti
Járnskvísan

Gamalt og krafsandi
07/01/2002 - 08/01/2002 / 08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2002 - 10/01/2002 / 10/01/2002 - 11/01/2002 / 11/01/2002 - 12/01/2002 / 12/01/2002 - 01/01/2003 / 01/01/2003 - 02/01/2003 / 02/01/2003 - 03/01/2003 / 03/01/2003 - 04/01/2003 / 04/01/2003 - 05/01/2003 / 05/01/2003 - 06/01/2003 / 06/01/2003 - 07/01/2003 / 07/01/2003 - 08/01/2003 / 08/01/2003 - 09/01/2003 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 /


Powered by Blogger