Ragnheiður P
Loksins sest maður aðeins niður til að blogga. Fór í saumó hjá Hjöddu í sveitinni á laugardaginn, hún bauð okkur uppá margskonar góðgæti, takk æðislega fyrir mig Hjödda :) Þetta var mjög skemmtilegt kvöld og sátum við langt fram eftir kvöldi og ræddum um allt, sérstaklega gömlu góðu dagana ;) Síðan fór ég heim í Keflavíkina og sá um ungann litla, sem er sko enginn ungi lengur, orðinn ábyggilega 185 á hæð !!! Doblaði svo Stebbu vinkonu til að rúlla með mig í bæinn á sunn... við kíktum aðeins í Smáralindina og ráfuðum í einhverjar búðir, en lítið var keypt því buddan mín er orðin ansi þunn :) Mætti í skólann eldsnemma í morgun og hitti hópinn minn, erum nú alveg búin að vera dugleg :) Kl. 14 var í dag var haldinn í Háskólanum í Reykjavík stærsti opni framboðsfundurinn fyrir kosningarnar 10. maí. Á fundinum voru tekin til umræðu þau mál sem helst brenna á ungu fólki og bar þar hæst menntamál auk atvinnu-, skatta- og utanríkismála. Málsvarar flokkanna voru þau Halldór Ásgrímsson, Geir H. Haarde, Margrét Sverrisdóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Ögmundur Jónasson. Fundarstjóri var Sigmar Guðmundsson, einn umsjónarmanna Kastljóssins. Frambjóðendurnir náðu að koma sínu á framfæri og er ég orðin þó nokkuð sannfærð um hvað ég muni koma til með að kjósa !!! En hvað með þig ???
Hæhó... Gleðilegt sumar :) Fór í kef.. á fimmtudaginn, Rúna vinkona var að skíra litla prinsinn sinn, Einar Aron :), innilega til hamingju með drenginn ! Fór svo til mömmu og var hjá henni eitthvað fram eftir kvöldi, bauð Önnu minni smá rúnt þar til Begga hóaði í mig og við tókum brunið í bæinn. Náði restinni af Bachelorette, en annars er ég ekkert að fýla þennan þátt eins vel og Bachelor, það ætti samt eiginlega að vera öfugt !!! Begga kom til mín í gærkvöldi og við horfðum á Ungfrú Ísland.is, það gengur ekki að vera einn að horfa á svona keppni :) girls you know what I mean ! Var annars að koma úr sundi og er núna stödd upp í skóla að bíða eftir hópnum mínum, en hvað er málið, eru allir seinir eða ætlar fólkið ekkert að hittast í dag, það er ENGINN kominn !!! Jæja jæja ég bíð allavega aðeins lengur :) Saumó í kvöld út í Sandgerði hjá Hjördísi, fæ far hjá Begs og sef svo í kef... því mutta og matti eru í Krumshólum og einhver þarf að gæta ungans !
Váá held nú að ég hafi ekki gert mikið annað en að éta á mig gat um páskana hihi. Það er eins gott að maður verði duglegur að hreyfa sig í sumar :) Fór í kef.. á lau.. og var þar fram á sunnudag þar sem dekrað var við mig eins og litla prinsessu ;) Fékk páskaegg nr. 4 frá mömmu og pabba, umm... það var rosalega gott, en ætla ég aldrei að fara að vaxa upp úr þessu ;) Tókum rúnt upp í Hafnir á sunnudaginn og kíktum á bústaðinn hans afa. Rúlluðum í bæinn seinni partinn og tókum bara tjillið heima um kvöldið. Er annars búin að vera í páskafrí frá því á fimm.. og fannst bara alveg ágætt að mæta í skólann í morgun :) Rúna hringdi áðan og var að bjóða mér í skírnarveislu á fimmtudaginn, það á að skýra litla hennar Rúnu :) Þannig að maður kíkir þá aftur í víkina í vikulok !!! Það eru einhverjar krumshólarpælingar um helgina humm... væri nú alveg til í eitthvað svol... !
Ég er bara öll að koma til, datt bara í´ða í gær í fyrsta skiptið í mjög langan tíma og var bara helvíti flott á´ðí :) Fórum fyrst í partý inní Garðabæ hjá Jóhanni, þar var allt gengið hans Steina, líst nú bara alveg ágætlega á krakkana. Þau voru nú alveg að sleppa sér yfir hinni "vinsælu" hljómsveit Papar, var kannski ekki alveg að kveikja í mér. En ég hafði bara mjög gaman af en þarf samt að fá þau til að meta alvöru tónlist hehe !!! (segi nú bara svona). Fór svo heim til Beggu og kíkti með stelpunum í bæinn, fórum á Sólon. Rölti svo heim því ég var orðin svo helv.. þreytt !
Erum að fara í matarboð í kef.. í kvöld, ohh hvað ég hlakka til að hitta fólkið mitt :)
Verð nú bara að koma einu inn:
Setning kvöldsins var "Steini sestu niður"
Jæja have to go, síju mæ frends :)
Hvað er að gerast ? Það var ekkert smá gott veður í dag, held að þetta hafi verið hlýjasti dagur ársins. Ég vona að við fáum marga svona daga í sumar, þetta er æðislegt ! Fór í Árbæjarlaugina og sleikti sólina í pottunum, fékk meira að segja smá lit :) ekki veitir af ! Laugin var alveg troðfull af fólki sem vildi heldur betur nýta góða veðrið og fá smá lit á kroppinn, hitti m.a.tvo bekkjarfélaga. Þreif svo "kaggann" það var alveg kominn tími á það. Maður er búinn að vera eitthvað svo upptekinn í prófunum að maður hefur ekki haft tíma fyrir neitt svol.
Annars fór ég með stelpunum í gær á Sólon, skemmti mér alveg ágætlega. En vitið menn, hver annar en Herbert Guðmundsson mætti þarna sem eitthvað surprice, hann tók "lagið" og var alveg geggjað að fýla sig. Ég get nú ekki sagt annað en að ég vorkenndi honum nokkuð, því fólkið var held ég ekkert að fýla hann.... kemur s.s. ekkert á óvart ! Var hann ekki bara frægur fyrir fíflaskap ??? Það hugsa ég !!!
Þú ert flott!
Þú ert þokkalega sátt við kynþokka þinn og kannt að sýna hann. Þú veist hvar á að setja mörkin og hvernig þú átt að sýna aðra kosti þína. Þú vilt einnig að hann meti að verðleikum gáfur þínar, gamansemi og slíkt. Það sem mönnum finnst mest aðlaðandi er kona sem er sjálfsörugg, bæði innan og utan svefnherbergisins. Hann horfir á hvernig þú hreyfir þig, talar, brosir, klæðir þig og hvernig þú nýtur ásta. Vertu ekki hrædd við að leigja stundum erótíska mynd, klæðast sexý og fara í leiki í svefnherberginu.
Er loksins komin í hið langþráða páksafrí !!!
Fór í gær og keypti mér ýkt flottan sundbol í Intersport í Smáralind, sá gamli var alveg farinn að syngja sitt síðasta. Fórum svo í Kópavogslaugina og ég tók smá sundsprett, voða dugleg :) Fékk mér svo ís í ísbúðinni á Hagamel, umm... rosa gott ! Annars var kvöldið bara mjög rólegt og gott, bara horft á tv með tærnar upp í loftið,
þannig á það að vera ! Mætti svo í skólann í morgun og hitti hópinn minn og við ákváðum að taka okkur páskafrí fram á þrið... ljúfa líf ;) Anna mín er í bænum og ætlar að kíkja á mig seinna í dag, þannig að við getum brasað eitthvað ! Jæja þangað til næst, bæjó :)
huhumm.... Mikið rosalega er skrýtið að vera bara í fríi, ekkert að lesa !!! Þarf eiginlega að læra það líka og það er sko EKKI leikur einn. Vaknaði í gærmorgun og byrjaði á því að fá mér göngutúr fór svo í skólann frá 10 til rúmlega 12. Þegar ég kom heim fékk ég mér að borða og fór svo út að labba, labbaði í 2 kl. ýkt gaman :) Fór svo líka í smá göngutúr um kvöldið með Steina. Ef allt sumarið verður svona þá er það bara að lofa nokkuð góðu ;) hihi but I guess not ! Er búin að fá 2 einkunnir úr skólanum og er MJÖG ánægð :) Það er búið að plana eitthvað djamm á fös.. og svo verður það örugglega keflavíkin á lau... Annars verður það bara að koma í ljós þegar nær dregur að helginni !
Í gær öðlaðist ég lífið á ný, kláraði s.s síðasta prófið mitt !!! Veit ekkert hvernig mér gekk, vona bara innilega að ég hafi náð. Er ekki að nenna að fara að standa í því að taka eitthvað endurtektarpróf í lok maí !!!
Begga vinkona er svo rosalega frábær og góð stelpa að hún ákvað að taka upp á því að bjóða genginu á Scooter tónleikana í Höllinni (takk æðislega Begga, þú ert æði !!!) Ég bauð stelpunum heim til mín á garðana og hélt létt teiti svona rétt fyrir gamið. Steini skutlaði okkur svo í Höllina. Tónleikarnir voru alveg argasta snilld, dönsuðum eins og bjálæðingar, geggjað stuð !!! Óheppin þið sem fóruð ekki, þið misstuð af miklu ! Stelpurnar fóru svo á NASA en ég var nú orðin svo lúin eftir allt of mikið álag yfir prófin, þannig að ég fór bara heim að lúlla :) Er núna komin í Keflavíkina og ætla að njóta þess að hafa nánast ekkert að gera, þetta er YNDISLET LÍF. Fer í fermingarveislu á morgun og bruna svo í bæinn til gæjans ;) Vill þakka öllum fyrir frábært kvöld í gær, skemmti mér þvílíkt vel :) Bæjó !!!
Elsku amma og afi til hamingju með daginn !!!
Þá er mín búin að fara í tvö próf og bara eitt eftir :) Fór í munnlegt próf í félagarétti áðan og gekk bara ágætlega, allavega náði ég !!! Síðan er síðasta prófið mitt á fös... í eignarétti, þá er bara að standa sig og taka það með stæl ;) Var að vakna eftir mjög vægast sagt langþráðan lúr... er nánast ekkert búin að sofa undanfarna daga. Forgangsröðin mín er kannski ekki eins og hjá flestum svona rétt fyrir próf, setti sko fjölskyldu mína í forgang um helgina. Amma og afi buðu öllu genginu á Örkina á laugardaginn til að fagna 45 ára hjúskaparafmæli þeirra. Ég og Steini lögðum af stað seinni partinn og hittum allt fólkið mitt og komum okkur svo fyrir. Öllum var að sjálfsögðu boðið í mat um kvöldið og fengum við 3ja rétta máltíð með víni og alles, og bragðaðist maturinn MJÖG vel. Pabbi, bræður hans og konur þeirra sungu svo fyrir þau ljóð sem þau létu semja fyrir sig í tilefni dagsins og heppnaðist það bara mjög vel :) Síðan var þeim færð "gjöfin" og ég held að ég hafi sjaldan séð jafn hamingjusöm hjón ! Hljómsveit frá Hveragerði hélt uppi fjörinu langt fram eftir kvöldi og stigu allir í dans, afi bauð minni í dans og ég skal sko alveg fullyrða það að ég hef bara sjaldan séð jafn góðan dansara ;) Steini minn... með fullri virðingu fyrir þér, þú stóðst þig líka mjög vel, takk fyrir sveifluna !!! Vöknuðum svo, fengum okkur morgunmat og brunuðum svo í bæinn. Enda þurfti ég að halda áfram að læra !!! Er búin að plana partý hérna á lau... þannig að ég vona að sem flestir sjái sér fært um að líta við :) Djö.... ég hlakka svo til að klára prófin !!!
Fór í munnlegt próf í samningarétti í gær og held að ég hafi bara verið að gera góða hluti... Allavega náði ég nærri því að tæma allt efnið áður en ég leyfði kennaranum að komast að, þá spurði hann mig og ég svaraði því "held ég alveg rétt" !!! Anna kom svo til mín seinni partinn og ég bauð henni í tacos, fórum síðan í bíó á "Maid in Manhattan" mjög góð stelpumynd :) Tókum svo smá rúnt og hlustuðum á London tónlistina okkar..... rétt náði svo endanum á Bachelor, oj hvað er málið með gaurana sem eru í boði ??? Það er ekki einn sætur strákur þarna !!! Ég ætla að vona að ég ekki ein um það álit, humm.. !!!
Er búin að vera að læra í allan dag, fer í næsta próf á mán... !!! Verð að vera mjög dugleg því ég er að fara í 45 ára hjúskaparafmæli ömmu og afa á Örkinni á morgun ;) Þangað til næst, behave !!! ;)
PRÓFLESTUR.......
Jæja þá verður stelpan að standa sig í prófunum ! Er búin að vera dugleg að lesa og held bara að ég kunni þetta nokkuð vel, eða þangað til annað kemur í ljós ;) B.t.w. ég flutti á laugardaginn hingað á Eggertsgötuna með hjálp mjög góðra manna (pabbi og Steini, takk æðislega fyrir ALLT. Fyrir þá sem vilja kíkja í kaffi "eftir 11.apríl" you are welcome :) Líkar bara mjög vel og var mjög fegin að þurfa ekki að henda 30 þús.. í vaskinn þessi mánaðarmótin !!! Flutti m.a. rúmið mitt hingað og omg hvað það er gott að sofa í því, er sko búin að sofa í svefnsófa ALLTOF lengi og var komin með verki í bakið og alles hehe.
Birna og
Gutti kíktu á okkur í vikunni og var mjög gaman að fá þau hingað yfir :) Verðum að endurtaka þetta bráðlega og grilla eða gera eitthvað skemmtilegt ! Fer í fyrsta prófið mitt á fimm.. og ætla svo að hitta
Önnu mína eftir það, uff.. það er orðið svo langt síðan við hittumst að ég er komin með fráhvarfeinkenni :( Miss u Anna mín ! Jæja nú er kominn háttatími hjá minni, góða nótt !