Ragnheiður P
Er núna alveg á fullu að undirbúa mig undir próflestur. Setja saman fyrirlestra og bókarglósur. Er samt búin að prenta út alla fyrirlestrana og er alveg að komast í réttan gír :) Þá er bara að hefjast handa... en þó að ég sé nú ekki byrjuð í prófunum þá get ég ekki hætt að hugsa um það hvað það verður ljúft að ganga út úr síðasta prófinu :) Fór heim um 4 úr skólanum í gær og fór líka í alveg rosalegan göngutúr.. uff það var sko ljúft (sá 2 kanínur á vappinu rétt hjá Nauthólsvík :) mjög sætar) ! Var svo á bókhlöðunni til að ganga 10, rosa dugleg. Horfði aðeins á "Fólk" með Sirry í gær, Dávaldurinn var í þættinum hennar að dáleyða einhverja konu, Guð minn góður, hvernig í ósköpunum er þetta hægt ??? Skil bara ekki ! Jæja verð að hætta þessu bulli og halda áfram...
well well... þá er síðasta kennsluvikan á enda og ég held að það sé bara fínt, er alveg að verða komin með nóg !!! Fer í tvö munnleg próf og eitt skriflegt, og er alveg að farast úr stessi :) hihi En ég held samt að það komi lang best út þegar maður fer í munnleg próf, samt kannski stessandi að draga eitthvað sem maður veit kannski ekkert um !!! En er núna á bókhlöðinni að lesa, það er fínt að breyta aðeins til, fékk alveg ógeð af skólanum mínum fyrir jól, því ég var ALLTAF þar. Kannski ég ætti að gera svona plan... hvar ég ætla að vera að læra fram að prófum.. humm ekki slæm hugmynd, get meira að segja verið hjá frænku minni á Dunhaganum, eða kannski ekki. Flyt út um mánaðarmótin, flyt út undan mesta okri ever !!! En jæja best að fara halda áfram ! Ble...
Hallo.... Er búin að vera að læra í allan dag ég get svo svarið það ! Fór annars á fund í dag með "manni" sem ég vill ekki nefna hér á síðunni en hann veitti hópnum mínum mjög góða hjálp varðandi verkefni sem við erum að vinna :) Er annars búin að vera ein heima í allan dag því Steini minn fór í koktailboð hjá umboðsmanni alþingis !!! Var að horfa á djúpu.. gott framtak hjá Bifröst :)
Verð nú að minnast aðeins á það að setti í 2 vélar áðan og svo var inneignin allt í einu búin á þvottavélarkortinu, svo að ég gat ekki notað þurrkarann... Er með þvottinn út um alla íbúð :( ups... ekki alveg nógu gott sko ! Verð að muna að kaupa nýtt kort eftir helgi !!!
Uff... alveg brjálað er gera hjá minni þessa dagana. Aðeins 2 vikur í prófin og endalaust verið að hlaða á okkur verkefnum síðustu vikurnar er næstum því að kafna !!! En reyni nú samt að gera vel við mig inn á milli, maður á það nú skilið ;)
Svei mér þá, held ég hafi verið með fallegasta barn í heimi í fanginu hjá mér í gær. Já það var hann Einar Aron hennar Rúnu vinkonu :) hann er sko algjör engill !!! Gerði mér góðan dag í gær og skellti mér í sundlaugina í kef.. og tók smá sundsprett í bestu laug í heimi ;) Fór svo til Rúnu og kíkti á þá fjölskyldu ! Fór síðan bara heim og lagði mig enda ýkt þreytt því lítill sem enginn svefn gafst nóttina áður :( Bakaði pizzu með mömmu um kvöldið og var svo bara í tjillinu með familyunni allt kvöldið og fór bara snemma í háttinn ! Vaknaði svo eldsnemma og fékk far í bæinn og hitti Steina minn :) Fór í nammiland, enda er laugardagur en óvart þá stal ég namminu mínu, alveg óafvitandi !!! ups.....
Náttfatapartý í skúrnum hjá Önnu minni !!!!
Gerði mér ferð í Keflavíkina vegna þess að mér var boðið í náttfatapartý í skúrinn hjá Önnu og þemað var íslensk tónlist ! Kom rétt fyrir kvöldmat og borðaði með familyunni :) skellti mér svo í náttfötin og rúllaði heim til Önnu. Ég,
Anna, Stebba, ,
Begga,
Ingibjörg og Rúna vorum alveg í meka stuði allt kvöldið enda ekki oft sem að gengið hittist allt saman ! Stebba kom með surprice handa okkur öllum, þ.e voða fína Bláa lóns sápu, takk Stebba kiss kiss ! Flestar voru að sötra á einhverju góðu meðan að sumir létu sér bara nægja gosið :) Kræsingarnar voru ekki af verri endanum og pökkuðum við okkur út af allskonar góðgæti :þ Það voru ekkert lítil vonbrigði með Bachelor... héldum allar að við værum að horfa á síðasta þáttinn þar til allt í einu birtist á skjánum "
íslenskur texti...."
vá hef sjaldan verið jafn fúl hehe ! Ásgeir vinur Beggu var að vinna á fm. þannig að auðvitað fékk gengið kveðju og eitt íslenskt.... en Stebba fékk aðalbónusinn...
Stebba gógó gella úr kef... hihi say no more :) Þegar líða tók á kvöldið færði gengið sig yfir í betri stofnuna og deildum við þar skemmtilegum sögum með fleiru. En auðvitað vorum við orðnar frekar þreyttar undir lokin og lögðumst því hver á sinn kodda og lognuðumst út af, eftir alveg frábæra kvöldstund. En að sjálfsögðu þurftu einhverjir tveir vitleysingar, ég nefni engin nöfn...... en það voru drengir hér í bæ sem vildu ólmir komast í partýið okkar og reyndu fyrst að komast inn í gegnum bílskúrshurðina, þar til mamma hennar Önnu spurði hvern djö... þeir væru að gera ? og þeir sögðu þá
"okkur var boðið í partý" ég meina common.... síðan bönkuðu þeir á gluggann og Anna var sko ekki sátt og sagði þeim að snauta. Við erum að tala um að þeir eru sko ekki 13 ára strákar sem voru að reyna að komast inní náttfatapartý hjá stelpum í bekknum, neinei heldur voru þeir rúmlega tvítugir !!! Get a life strákar... ég meina það ! En þrátt fyrir allt var þetta geggjað kvöld og vil ég þakka öllum vinkonum mínum kærlega vel fyrir samveruna, kiss kiss !
við verðum að endurtaka þetta við tækifæri !
Mín svaf bara út í morgun út af þvi að tíminn féll niður sem átti að vera kl. 10 :) Mætti hins vegar í skólann um 1 og ætla að vera rosa dugleg að lesa í dag !!
Hitti Önnu mína í gær og fékk líka svona rosa flott boðskort í "partý" í skúrinn á fimmtudaginn ! Takk fyrir það :) Hlakka rosa til að hitta gengið mitt og er bara að spá í að eyða helginni í kef ;) En þangað til næst, hafið það rosa gott !!!
Ég held barasta að mig hlakki til að fara að vinna í sumar, er komin með alveg nóg af því að eiga engan pening og hitta vinkonur mínar bara einu sinni í viku :( En allavega þá styttist óðum í prófin hjá mér þannig að ég held ég verði að fara að undirbúa mig undir próflesturinn skemmtilega !!! Samt er alltaf hægt að sjá ljósið í dimmunni því að ég verð búin í prófum fyrir páska :) Jibbý jibbý !!!!
Annars er árshátíðin framundan hjá skólanum mínum á föstudaginn, þannig að það er aldrei að vita nema maður skelli sér á Selfoss á árshátíð !
Er það nokkuð alslæmt ???
I'm Monica Gellar-Bing from Friends!
Take the Friends Quiz here.
created by
stomps.
LÖGRÉTTA félag laganema við Háskólann í Reykjavík !!!
Það var alveg rosalega mikið fjör í gær hjá okkur laganemum ! Fjörið byrjaði með koktail upp í skóla, Heiðrún, formaður Lögréttu, stóð sig ekkert smá vel og einnig allir þeir nemendur og kennarar sem stóðu að þessum degi því hann var að öllu leyti mjög skemmtilegur. Hópnum var svo kynjaskipt þannig að við stelpurnar fórum á Thorvaldsen bar og strákarnir á Vínbarinn og eftir c.a kl. var svissað um um stað !!! Einhverjir fóru svo á Borgina en aðrir á Eldsmiðjuna (þ.e. þeir sem týmdu ekki að eyða morðfé í kjúlla og kaffi á Borginni). Ég fór allavega ásamt fríðum og fengulegum hóp á Eldsmiðjuna, fengum okkur bara pizzu, very good ! Enduðum síðan á Sólon þar sem allt var fljótandi í veigum ;) Áttum þar saman frábæra kvöldstund enda hópurinn rosalega samstæður og skemmtilegur
:)
Steini kom svo að sækja Ragnheiði sína upp úr miðnætti var sko alveg búin á því enda búin að vera að frá því kl. 2 um daginn ! Geri aðrir betur ;)
Jæja þá er kominn laugardagur :) verð að vera mjög dugleg að læra til hádegis því þá verður mín að skella sér í sprigallann því það er koktailboð upp í skóla kl 13:30. Í dag fer fram formleg stofnun "Lögréttu" félags laganema við Háskólann í Reykjavík. Það verður byrjað á koktail upp í skóla þar sem Sólveg Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, mun fylgja Lögréttu úr hlaði auk þess sem formaður félagsins, forseti lagadeildar og rektor skólans muna flytja ávörp í tilefni dagsins. En ekki get ég sagt hvað við gerum eftir það því þá verður nokkurs konar "óvissu dagur" fyrir okkur laganema og í lokin verður farið að borða á Borginni !!! Síðan verður ferðinni heitið á Sólon þar sem við slettum ærlega úr kaufunum á efri hæðinni ;) En má nú ekkert vera að þessu bloggi.... verð að koma mér að verki ! ciao :)
Jæja þá er kominn laugardagur :) verð að vera mjög dugleg að læra til hádegis því þá verður mín að skella sér í sprigallann því það er koctailboð upp í skóla kl 13:30. Í dag fer fram formleg stofnun "Lögréttu" félags laganema við Háskólann í Reykjavík. Það verður byrjað á koctail upp í skóla þar sem Sólveg Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, mun fylgja Lögréttu úr laði auk þess sem formaður félagsins, forseti lagadeildar og rektor skólans muna flytja ávörp í tilefni dagsins. En ekki get ég sagt hvað við gerum eftir það en þá verður nokkurs konar "óvissu dagur" fyrir okkur laganema og farið svo að borða á Borginni !!! Síðan verður ferðinni heitið á Sólon þar sem við slettum ærlega úr kaufunum á efri hæðinni ;) En má nú ekkert vera að þessu bloggi.... verð að koma mér að verki ! ciao :)
Það kemur mér nú ekkert mikið á óvart að fólk nenni ekki að kíkja lengur á síðuna mína, en ég ætla að reyna að bæta úr því !
Síðasta helgi í hnotskurn--> Fékk kaggann lánaðann yfir alla helgina því mamma og pabbi voru í bænum eitthvað að menningast :) var rosa pæja !!! (eða það fannst mér allavega) Brunaði í kef á fös og byrjaði á því að kíkja á Norðurgarðinn til ömmu og afa, vill nú þakka þeim kærlega vel fyrir mig, þau eru yndisleg :) Stelpurnar kíktu svo til mín í djúpu.. fylgdumst með suðurnesjamærum sem voru í stefnumótaleik hihi og ekki má gleyma að minnast hvað karlpeningurinn var glæsilegur hehe !!! (er þetta ekki móðgun fyrir greyið stelpurnar ???) Á lau kíkti ég á Rúnu og Einar Aron, hann er fallegasta barn sem ég hef séð. Rúna þú átt sko sannarlega allt í honum ;) Kíkti svo á Sirry- alltof langt síðan við töluðum saman... !!! Brunaði svo í bæinn til Steina og við skelltum okkur í bústað í Efsta-dal (rétt hjá Laugarvatni). Andri, Marta og Finnur (6 mán. kríli) buðu okkur að koma og njóta samvista með þeim :) Það var mjög fínt, rosalega flottur bústaður ! Takk fyrir okkur, Andri og Marta :) Á sunn.. kíktum við aðeins í kaffi til ömmu og afa og fórum svo í bollur til "tengdó" (það má nú alveg segja það) :) hehe. Helgin var mjög fín í alla staði fyrir utan það að lærdómurinn hefði alveg mátt hafa smá forgang !