Ragnheiður P
Er bara engan veginn að standa mig í blogginu þessa dagana ! sorry :( Helgin var mjög fín bara haft það notalegt á Valentínusardaginn og svo fór ég auðvitað í matarboð + eurovision partý til Beggu á lau.. Það var alveg þrælmagnað, sumir auðvitað aðeins ölvaðari en aðrir. Anna byrjaði kvöldið á því að reyna að kveikja í kofanum, síðan voru rökræðurnar um barnseignir í miklu aðalhlutverki þetta kvöld. Dansinn var að sjálfsögðu tekinn á stofugólfinu með DJ Stebbu í fararbroddi, ekki slæmt það. Þegar gellurnar voru búnar að sulla í sig og tilbúnar á djammið þá skutlaði ég þeim á NASA ! Fór bara sjálf heim að sofa enda eyddi ég öllum sunnudeginum í próflestur. Fór í miðannarpróf á mán.. í samningarétti, held að mér hafi gengið bara ágætlega ! Vikan er bara búin að vera mjög fín, fórum í ræktina og svo í mat til mömmu og pabba hans Steina í gær, nammi namm fiskibollur :)
Var annars að koma heim úr the school núna, fór á viðskiptaþing þar sem Hannes Hólmsteinn Gissurason var fyrirlesari ! Mjög skemmtilegur karakter verð ég nú að segja. Ætla að skella mér í smá leiðangur á eftir, talvan mín tók upp á því að beyla þannig að ég verð að ná í hana í viðgerð. En ég vil minna ykkur á Bachelor í kvöld ;) sí ya !
DEILDU ALDREI VIÐ KONU SEM LES !!!
Hjón ein héldu til veiða í norðurhluta Minnesota. Eiginmanninum þótti best að fara út á vatn til veiða í birtingu, en eiginkonan kunni best við sig heima í tjaldi að lesa. Morgun einn kemur maðurinn til baka eftir nokkurra klukkutíma veiði á vatninu og ákveður að leggja sig. Konunni dettur þá í hug að fara á bátnum út á vatn, þótt hún væri óvön bátnum. Hún setur utanborðsmótorinn í gang, siglir út á vatn nokkurn spöl, leggst við stjóra og fer að lesa. Að nokkurri stund liðinni birtist veiðivörðurinn á bát sínum, leggur við bát konunnar og segir: Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera hér? -Lesa bók ( eins og það sé ekki augljóst - hugsar hún) Þú ert hér á bannsvæði, hér má ekki veiða, segir vörðurinn. Ég er ekki að veiða, ég er bara að lesa, svarar konan Já, en þú ert með allan búnað til veiða, mótmælir veiðivörðurinn, ég verð fara með þig í land og skrifa þig upp. Ef þú gerir það, svarar konar, verð ég að kæra þig fyrir kynferðislega reitni. n ég hef ekki einu sinni snert þig, segir vörðurinn afsakandi. Það er alveg satt, en þú hefur allan búnað til þess!
Boðskapur: Deildu aldrei við konu sem les. Það mjög sennilegt að hún geti líka hugsað!
Rosalega er fólk eitthvað forvitið !!! En allavega er allt gott að frétta af mér. Var að eignast "lítinn frænda" 12. feb :) Elsku Rúna og Einar Már, innilega til hamingju með litla prinsinn :) Annars er ég líka nýbúin að eignast litla frænku og er boðið í skýrn á sunnudaginn, hlakka til að sjá þessi krútt ! Það er búið að vera alveg nóg að gera í skólanum og var ég að skila fyrsta raunhæfa verkefninu í gær, vona bara að ég sé að gera rétta hluti ;) Það er búið að plana matarboð og eitthvað djamm hjá Begs hérna á Eggertsgötunni á lau.. þannig að það er í nógu að snúast um helgina, fyrir utan það að ég er að fara í miðannarpróf í samningarétti á mán... ! Má bara ekkert vera að þessu hehe, ble...
BLOGGAÐ Í BRUSSEL !!!!
Er núna stödd í Brussel með honum Steina mínum, erum búin að hafa það alveg rosalega gott ! Komum út á miðvikudaginn, flugum með Íslandsflugi og það var sko rosalegt ævintýri.... ! Jóhann og Jóhanna sóttu okkur svo á flugvöllinn og þau eru búin vera alveg frábær. Á fimmtudaginn fór Jóhanna með mig og Steina niðrí miðbæ og við kíktum aðeins í búðir. Um köldið fórum við heim til Einars bróður hans Steina og Elísabetar í mat. Húsið þeirra er GEÐVEIKT ég hef bara sjaldan séð annað eins hús. Það var byggt 1928 og minnir helst á litla höll. Fengum mjög góða þriggja rétta máltíð, nammi namm og eftirrétturinn var algört æði (súkkulaði kökur frá marcolini) ;) Sátum svo með þeim eitthvað fram eftir kvöldi og spjölluðum og dukkum :) Á föstudaginn fóru Einar og Elísabet með okkur í íslenska sendiráðið þar sem Einar vinnur og rúntuðu síðan með okkur um Brussel, mjög skemmtilegt sáum m.a Evrópuþingið ! Um kvöldið fórum við út að borða með Jóhönnu og Jóhanni á mexíkóskum veitingastað það var mjög gott og svo var bara tjillað heima, spiluðum aðeins og spjölluðum síðan eitthvað fram eftir kvöldi ! Steini alveg að meika það með súra hlaupið hehehe ! Dagurinn í dag er búinn að vera mjög skemmtilegur, vöknuðum upp úr hádegi og keyrðum til Leuven sem er háskólabær rétt fyrir utan Brussel. Skoðuðum okkur þar um og fórum svo á pubbinn, ferlega skemmtilegur bær ! Kíktum svo niðrí miðbæ Brussel og versluðum aðeins, náði meira að segja að plata Steina til að versla föt á sig, sko mína ;) Núna sitjum við bara heima hjá J og J og erum að fara út að borða á eftir á steikhúsi, jammý ! En dvölin hérna er búin að vera alveg æðisleg í alla staði og vil ég þakka Jóhönnu og Jóhanni rosalega vel fyrir okkur. Au revoir ! (Bless á frönsku)

Hver man ekki eftir klaufabárðunum Pat og Mat :)
Kíkið á þetta !!!
Mikið rosalega er notalegt að vera bara heima að læra þessa dagana :) Allavega býður veðrið ekkert upp á neitt annað ! En er annars búin að hafa það mjög gott undanfarið og get sko ekkert skafað utan af því ;) Gerði mér smá dagamun á fimmtudaginn og horfði á landsleikinn... og mér fannst strákarnir bara standa sig mjög vel, þó að ég hafi á tímum verið svoldi æst hehe. Svo var það auðvitað Bachelor... er alveg að fýla þennan þátt, finnst alveg rosalega skrýtið samt hvernig þær geta bara allar verið hrifnar af honum.... Skil EKKI !!! Í gær var það svo djúpa laugin... mjög skemmtilegur þáttur, og hef ég bara sjaldan horft á jafn góðan þátt :) En ekki halda að ég geri ekkert annað en að glápa á tv, allt annað sem ég geri er bara ekki frásögum færandi :) hihi. Í dag er hinn langþráði nammidagur... og ætlar Steini að koma með mér í nammiland á eftir JIBBÝ. Fer svo í kef.. seinni partinn með
Beggu það er nebbla saumó hjá
Önnu minni í kvöld :) Hlakka rosalega til að hitta allt gengið ! Þangað til næst, elskið friðinn og kyssið kviðinn ;)