Ragnheiður P
Rosalega var ég stillt um helgina, ég held að ég verði að fara að venja komuna mína oftar í Keflavíkina :) Því annars er svo auðvelt að plata mann í einhvað sull hehe ! En hafði það rosalega gott um helgina, nammidagurinn langþráði var í gær og ég naut hans sko til fullnustu :) Anna mín skutlaði mér svo í bæinn í dag... Takk æðislega fyrir skutlið :) Ný skólavika framundan og ég hlakka bara nokkuð til að takast á við það ;) Bið að heilsa ykkur dúllurnar mínar bæjó !
Jæja þá er ég komin heim í Keflavíkina, annars hefði ég nú alveg viljað fara með í menningarferð til Akureyrar :) En hér er ég og get bara ekki annað en haft það gott. Fékk far með Þórhildi í gær og var komin heim rétt um hádegi. Um kvöldið kíkti ég til Önnu og við horfðum saman á Djúpu... mjög skemmtilegt ;) Síðan tókum við smá rúnt og hittum m.a Jónu Maríu.... annars var þetta bara mjög rólegt kvöld. Vaknaði svo bara upp úr hádegi og skellti mér auðvitað í bestu laug landsins og tók sundsprett :) Fór svo með mömmu í búð og þreif bílinn. Var núna að koma úr ljósum og er að velta vöngum mínum yfir því hvað hægt sé að gera af sér í kvöld !!! Verð að heyra í henni Önnu minni ;) síya !

MAN HVAÐ HANN ER SÆTUR !
Hæhæ.... ups... svoldi langt síðan síðast, en hingað er ég komin til að bæta úr því :) Ég held það sé óhætt að segja að helgin hafi verið "STATION" helgi. Á fös... var alveg rosalegt HR-djamm, byrjaði á því að fara í vísindaferð í Sjóvá-almennar. Þeir gerðu allt sitt besta til að kynna fyrirtækið og buðu okkur svo að loknum fyrirlestri upp á 6.hæð byggingarinna til að þiggja ýmsar veitingar ;) Eftir að fólk var orðið frekar hresst klukkan 7 að ganga 8 ( frekar snemmt ) þá var okkur boðið í bekkjarpartý hjá Gumma "bekkjarfélaga" niðrí bæ. Skemmti mér mjög vel en minnir samt að stólarnir heima hjá Gumma hafi verið svolid valtir hehe ! Síðan rölti ég með Söndru á Hverfis... við skemmtum okkur bara mjög vel, hittum einhverja Keflvíkinga sem virtust mjög vinalegir hihi. Eftir það var stór skandall !!!! :( hefði betur sleppt því að láta plata mig á Astro..... ! Á laug... kom allt gengið (
Anna,
Ingibjörg,
Stebba,
Begga,
Hjödda, Jóna María og Helga) úr kef.. heim til Begs, ég og Anna vorum edru en restin var eitthvað að sulla og sumir voru kannski svoldi drukknari en aðrir. Síðan var farið á NASA og ég og Anna fórum alveg á kostum á dansgólfinu, er þaggi Anna mín :) ? Á sunn... var ég bara að jafna mig eftir mikið djamm og mikið fjör... en þá plataði Anna mig til að koma í bíó, fórum á 8mile og hún er sko alveg GEGGJUÐ ;) og rosalega er hann Eminem sætur mar ! Síðan lúllaði Anna hjá mér og skutlaði mér svo í skólann. Núna er ég bara ein í kofanum, því hún Sigrid mín er farin í heilsubælið í Hveragerði :) Well læt þetta duga í bili.... Síya !
SANNUR íSLENDINGUR !!! EÐA HVAÐ ? HUMMMMM.....
VVVááááá hvað það er ýkt kalt úti.... held að maður sé bara orðinn of góðu vanur !!! En allavega... í gærkveldi ætluðum við að fara í göngutúr svona rétt eftir að hafa melt matinn og svona.... en nei nei held að ég hafi verið í c.a 10 mín. þegar ég var gjörsamlega að deyja úr kulda. En ég átti nú ekki frumkvæðið að því að stytta hringinn hihi :) er það nokkuð ?! Síðan tók það mig ábyggilega hálftíma að ná tilfinningu í puttana, samt var ég með voða fína vettlinga sem ég fékk í jólagjöf !! En ég ætla að vona að maður venjist þessu bara ;)
Helgin var alveg frábær hjá mér. Algjör dekur helgi :) Var bara mjög róleg, á fös. var ég uppí skóla e-ð fram eftir degi að læra fór svo heim og fór bara snemma í háttinn, var bara ekki stemmd í neitt annað. Á lau.. fékk ég að fara í nammiland, enda ekki á hverjum degi sem ég fæ nammi :) Svo fékk ég far með pabba og dóra í Kef.. það getur verið mjög gaman af þeim :) Fór svo í laugina í kef.. alveg yndislegt... lærði sko ekki mikið en afrekaði þó að komast yfir nokkuð mikið lesefni á DÖNSKU !!! Kíkti á hana Stebbu mína, það er ekkert smá huggulegt heima hjá þeim, vildi að ég ætti svona sæta íbúð ! Um kvöldið tókum við Anna spólur og keyptum auðvitað nammi, enda nammidagur hjá okkur :) Horfðum á "Killing me softly" djöfull er hún góð mar.... og ekki skemmir hvað Joseph Fiennes er rosalega flottur :)
Fór í bæinn á sunn... kíktum í Smáralindina og auðvitað fannst mér allt flott, bara af því að ég á engan pening, það er alltaf þannig !!! En ég lét það eftir mér að kaupa smá :) En ég sé samt ekkert smá eftir því að hafa ekki farið á Broadway... man.. LL cool J var leynigestur með Trevor Nelson, væri sko meira en til í að fá að sjá hann !
þETTA ER NIÐURSTAÐAN ÚR PRÓFI SEM ÉG TÓK Í HR SEM SEGIR HVERNIG PERSÓNUEINKENNI ÉG BER TIL AÐ STARFA SEM LIÐSMAÐUR Í HÓPI !
Ég er s.s Sérfræðingur:
Sérfræðingurinn er dyggur einstaklingur sem hefur mikinn metnað til þess að auka sérhæfi sína og sérþekkingu. Faglegur metnaður skipar stóran sess og hann skipar vörð um sitt sérsvið en getur sýnt fólki á öðrum sviðum tómlæti. Sérfræðingurinn verður sérfræðingur vegna ódrepandi áhuga á einu sérsviði. Það eru ekki margir sem hafa einbeitingu og hæfni til að vera fyrsta flokks sérfræðingar.
Veit nú ekki alveg hvort að þetta sé gott eða slæmt en allavega kemur þetta mér svolítið á óvart !
Þetta er rosalegt, er í tíma og er bara engan veginn með á nótunum. Kennarinn talar bara út í eitt og ég held ég þurfi að verða mér úti um stækkunargler til að geta lesið á glærurnar ! Gerði mér glaðan dag í gær og fór í sund með Steina eftir mikinn lestur og tók smá sundsprett og kíkti í gufuna í Vesturbæjarlauginni, hún er rosalega góð, mæli með henni :) En er alveg að komast í helgarfrí, jibbý jibbý... Helgin er ekki mikið skipulögð en allavega er mér boðið í smá bekkjarpartý á morgun og svo langar mig hrikalega að fara að dansa á Broadway á lau.... ;)
Ég er alveg viss um það að ég og strætókerfið eigum enga samleið ! Fór í gær að kaupa mér "græna kortið" niðrá Hlemmi, allt í lagi með það... en neinei þegar ég stíg fyrsta skrefið mitt inní þetta hús þá labba ég næstum því í fangið á hverri annarri en STÍNU HJALTA ekki alveg það sem ég vill sko. Síðan ákvað ég að taka fimmuna af því ég hef séð hana fara götuna mína, en auðvitað þurfti ég að klúðra því, endaði á endastöð lengst útí rassgati.... En ég á svo góðan vin sem sótti mig :) sem betur fer mar !!! En ég ætla að vona að ég læri bara af mistökunum hehe ! En annars væri nú ekkert vitlaust að fjárfesta í vespu eða kannski bara hlaupahjóli, humm... Hvað finnst þér ?
Þá er fyrsti skóladagurinn upprunninn... líst bara mjög vel á þetta allt saman. Æjæj einn kennarinn minn stamar alveg hrikalega :( ekki alveg nógu gott sko ! Ég þurfti að hafa mig alla við að skilja greyið manninn... en ég ætla að vona að þetta hafi bara verið smá stress hjá honum svona fyrsta daginn ;) En eftir skólann fór ég að kaupa bækur...ufff dýrt mar... !!! Síðan fór ég í smá matarboð.. umm takk fyrir mig :) Var annars að kaupa mér netkort í tölvuna mína í skólanum þannig að þið getið búist við þvi að sjá mig nokkuð oft online hehehe !!! Síya
Hello... Ég,
Anna og Jóna María fórum pínu á djammið í gær en allar edrú, skil nú ekki afhverju maður gerir það ekki oftar þar sem það er ÞÚSUND SINNUM skemmtilegra, maður man þó allavega eftir kvöldinu og getur ýtt ljótu strákunum frá sér hehe :) En við byrjuðum á því að fara á Duus í kef... brunuðum svo á Broadway á ball með Landi og sonum, Írafári og Á móti sól, mjög fínt ball.... hittum fullt af keflvíkingun og líka Gunnar, Steina og Ella !
Jæja nú er gellan að fara í bæinn, því
skólinn byrjar á morgun, er búin að hafa það rosalega gott hérna heima yfir jólin, og þakka bara æðislega vel fyrir mig, kiss kiss :)
ROSALEGA ER ÞESSI MYND SÆT, FINNST ÞÉR EKKI ? :)
¶
laugardagur, janúar 04, 2003
Fór í bíó í gær með
Önnu,
Beggu og
Stebbu á The hot chick.... huhumm hef nú alveg séð betri mynd. En við Anna gátum allavega hlegið af þessari vitleysu annað en sumir, það stökk nú ekki bros á vör sumra ! Síðan fórum við á Duus og spjölluðum yfir heitum kaffibolla, eða var það kannski bara diet kók :)
Burkni "actor" settist aðeins hjá okkur og spjallaði í smá stund, alltaf jafn gaman að heyra í honum ! Var að kíkja á heimsíðu HR og það er bara búið að setja okkur helling fyrir mánudaginn !!! Þannig að ég verð að fara að bretta upp ermarnar og byrja af krafti sem fyrst ;) síya !
uff... maður hefur það bara alltof gott hérna heima :) flyt aftur í bæinn á sunnudaginn og hlakka bara nokkuð til, þó að það sé alltaf gott að láta dekra við sig hérna heima ;) Er að fara í bíó hérna í kef.. með Önnu og Beggu og svo verður sennilega kíkt á Duus... bið að heilsa !
Well Well þá er árið 2003 gengið í garð !!! Gleðilegt nýtt ár :) Byrjaði kvöldið á því að borða alveg dýryndismáltíð með fjölskyldunni síðan var audda tekinn brennurúntur og frændurnir í Njarðvíkinni heimsóttir. Horfðum svo á skaupið og sprengdum upp hjá vinafólki okkar, þvílík FLUGELDASÝNING það var geggjað stuð.... var samt pínt smeik sko, hihi ! Síðan brunaði gengið í bæinn... byrjuðum að hella í okkur heima hjá Begs og ég kíkti svo á Steina vin minn í næsta húsi ;) Fórum svo á Astró, það var mjög gaman en samt ekkert svona sérstakt áramótakvöld.... dansaði samt mjög mikið og skemmti mér ýkt vel. Anna vinkona gerði nú allt vitlaust þegar negrakelling fór eitthvað að bögga hana, hehe bara fyndið ! Hélt að Anna hafi haldið á einhverjum dúski þegar hún sagði mér að það hafi verið hár úr negrakellu hihi. En ég vil þakka öllum fyrir frábært kvöld !