Ragnheiður P

Ég vill þakka öllum fyrir þetta frábæra ár sem er að líða og vona að árið 2003 (vááá skrýtið að tala um 2003) og næstu ár verði jafn frábær... :) Það er sko löng og mikil dagskrá í allan dag og svo verður endað með klikkuðu djammi í bænum, ég segi bara GÓÐA SKEMMTUN en farið jafnframt varlega ;) Kveðja Ragnheiður !!
Var að koma heim úr bænum, skrapp aðeins á Dunhagann og heilsaði uppá frænku gömlu, hún er svo góð :) síðan vorum við Begga svo þrælsniðugar.... við nældum okkur í 4 miða á Astro á gamlárs ;) Annars er gengið ekkert búið að ákveða hvað á að gera eða hvert á að fara !!! Endilega komið með einhverjar hugmyndir !
Hæhæ ég er búin að hafa það ekkert smá gott um jólin, vildi bara að þau væru aðeins oftar á ári ;) Kíkti á nýju
James Bond myndina í gær, hún er geggjuð, mæli eindregið með henni !!! Svo er ég auðvitað búin að taka út djammskammtinn sem ég var búin að spara í haust ! En hvað er eiginlega málið með okkur Suðurnesjabúa, er ekki hægt að halda eitt Stapaball án þess að það séu einhver slagsmál ??? Ég lenti einmitt í smá þrætum við einn sem er með mér í skólanum og hann var að tala um að við Suðurnesjabúar værum bara eitthvað "hvítt rusl" og ég auðvitað reyndi eins og ég gat að verja þetta "sorglega" bæjarfélag :( Lenti líka í smá rökræðum í jólaboði um Stapann og slagsmál, alltaf var ég að reyna að gera bara gott úr okkur ! En neinei auðvitað er ekki hægt að halda ball hérna án þess að einhver sé barinn nánast til dauða !!! Þetta er ömurlegt og endar með því að það fer bara enginn á djammið hérna. En allavega held ég að ég sé búin að fá mig fullsadda af þessu pakki hér í bæ !
Við gengið ætlum að fara í bæinn á gamlárs... látum ekki bjóða okkur uppá eitthvað svona kjaftæði ! En ég verð samt að viðurkenna að ég skemmti mér ýkt vel á ballinu og varð ekki vör við neitt rugl, en þetta heyrir maður í fréttunum ! Hérna eru fullt af myndum af ballinu,
endilega kíkjið !
Mynd af mér og önnu á ballinu, alveg sót.... hehe
Gleðileg jól elskurnar mínar... hafið það sem allra best yfir hátíðina !
Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Samhliða stjörnu þinni kemur fram að þú þráir að komast burt frá einhverju þessa dagana en hvað það er kemur ekki fram. Enginn hefur rétt á að stjórna þér, það veistu best sjálf/ur. Þú ættir ekki að hugsa þig tvisvar um ef þú þráir að breyta lífi þínu til betri vegar en gleymdu ekki fólkinu sem þú unnir heitt yfir hátíðarnar sem framundan eru. Oftar en ekki virðist þú vera óviss varðandi framhaldið og ættir ekki að hika við að leita ráða hjá vini/vinkonu sem þú treystir.
Mikið er ég fegin að hafa ekki verið uppi fyrir svona 50-60 árum !!! Fór í sund í gær og hitti þar eitthvað gamalt fólk í gufunni, þau voru eitthvað að tala um gömlu góðu dagana..... og ekki nóg með það, kallinn átti 17 börn og konan átti 14 !!! Guð hvað ég vorkenni konum voru kannski óléttar stanslaust í 18 ár :( En núna er tíðin önnur sem betur fer hjúkket mar..... :)
Reykjavíkurferð Önnu og Ragnheiðar.............. Byrjuðum á því að fara í skólann hennar Önnu að ná í einkunnirnar hennar, hún stóð sig rosalega vel stelpan, til hamingju með árangurinn !!! Kringlan varð svo fyrir valinu.... var reyndar búin að ákveða að fara ekkert í Kringluna um jólin, en..... :) Ætluðum okkur að versla jólagjafir, en neinei... við fundum bara ekki neitt ! Síðan kíktum við í Smáralindina og þar var nú eitthvað að fá...hummm!!!! Vorum orðnar drulluþreyttar á þessu rölti en við hættum samt ekki og fórum aftur í Kringluna og kíktum á kaffihús... Um kvöldið var svo smá reunion, buðum Gunnari og Steina á rúntinn.... skoðuðum jólaskrautið og auðvitað klikkaði ekki bryggjurúnturinn ;) Þerney var í landi, örfirsey var í landi og Rán og fl. já spyrjið mig bara, ég veit þetta allt saman :) Síðan keyptum við Gunnar okkur ís... og að sjálfsögðu þurfti ég að hella íssósu í nýja bílinn :( sorry !!! Síðan var ferðinni bara heitið heim, eftir bara nokkuð vel lukkaða bæjarferð ! Takk fyrir kvöldið !
Komst í algjöran jólafíling í gær, ég og mamma vorum að baka sörur með dívurnar í græjunum.... geggjað stuð :) Svo kom Sirrý í heimsókn, alltaf jafn gaman að hitta hana, takk fyrir komuna Sirrý mín ! Ég og Anna Ósk tókum svo jólarúnt og skoðuðum jólaskraut í Keflavík og nágrenni, hvað er málið með húsið á móti kirkjunni !!! Er þetta jólahús eða hóruhús, það er alveg hræðilegt..... æjæj greyið fólkið :( Er að fara í bæinn á eftir með henni Önnu minni og við ætlum að ná í einkunnirnar hennar og fara svo að versla jólagjafir :) gaman af því !

""Which cocktail are you?"" brought to you by Quizilla
hummm.... veit nú ekki hvort ég sé sammála ! ;)
Jibbý jibbý loksins er ég búin í prófunum og komin heim í Keflavíkina :) Fór í síðasta prófið í morgun og gekk bara alveg ágætlega. Það var munnlegt próf og ég dró viðfangsefni sem ég átti sko alls ekki von á, en náði samt sem redda því ! Er núna að spá í að eyða smá tíma í sjálfa mig.... lít sko ekki vel út hehehhehe eftir að hafa legið yfir bókunum í alltof langan tíma ! Ætla að fara í ljós og kíkja svo á vinkonurnar, bæjó !
váá hvað ég er ekki að meika það að blogga þessa dagana, aðdáendur mínir verða bara að afsaka það á meðan mín er í prófum :) hihi. En allavega þá er ekki mikið í gangi hjá mér annað en að lesa, held ég sé búin að færa lögheimilið mitt upp í skóla, er alltaf hérna. Annars er aðstaðan hérna mjög fín og stutt að skreppa í Kringluna til ná sér í eitthvað að narsla ;)
Anna og
Stebba voru í bænum í gær og ég kíkti aðeins með þeim á kaffihús, held það sé nú í lagi ! Næst próf er á þriðjudaginn í kröfurétti og svo er bara vika í næsta og svo er ég búin !!!! En Begga er að fara í próf á morgun þannig að það er eins gott að við sendum henni hlýja strauma. You go girl... ég hef trú á þér
Begga mín :) jæja þetta var nú stutt pása, best að kíkja aftur inní lesstofu :( bæjó !
Well well þá er maður búinn að taka fyrsta "alvöru" háskólaprófið !!! Það er eins gott að ég nái þessu prófi því að ég er búin að leggja alveg nógu asskoti mikið á mig til þess, humm....! En annars gat ég nú alveg svarað öllum spurningunum en hvort það hafi allt verið rétt verður bara að koma í ljós seinna :) Þá byrjar mar bara að lesa fyrir næsta próf, svona verður þetta alveg þangað til ég er búin 17.des.. djö... hlakkar mig til, er að fá mig alveg full sadda af öllum þessum lestri. En vitið þið hvort að sjónin geti eitthvað versnað ef maður les ýkt mikið ? held nebbla að ég sé farin að sjá doldi verr en ég gerði, það er nú ekki alveg nógu gott, því þá verður Ragnheiður að fara að ganga með gleraugun, það gengur eiginlega ekki sko :( hef nú sloppið við það hingað til ! Er orðin mjög þreytt núna og verð að fara að hvíla lúinn líkama. Góða nótt :)