Ragnheiður P
Jæjá þá loksins gef ég mér smá tíma í að blogga. Mikið rosalega er tíminn fljótur að líða, kennslan er búin og við tekur undirbúningur og lestur fyrir komandi próf ! Er búin að vera að læra uppí skóla að læra núna undanfarið og það er sko slegist um sæti, sumir eru meira að segja svo öruggir með sig að þeir hafa bara hreiðrað um sig í einhverjum bás og enginn kemst að :( ekki alveg nógu sniðugt hummm.... !!! En allavega, nóg um það. Fór í matarboð til ömmu og afa í gær,
Frikki frændi snilldar kokkur eldaði geggjaðan kjúkling ummm :þ ýkt gott mar. Maður lærir svo að meta góðan mat þegar maður fær ekkert annað en flatkökur og primus hihi er búin að lifa á því ábyggilega í mánuð. Er núna stödd í Grafarvoginum hjá
Önnu og Ragga, þau eru að passa fyrir frænku hans. Horfðum á djúpu, voðalega voru þau krúttleg Jón Freyr og vinkona :) Jæja ég segi þetta bara gott í bili, tata !!!
Hæ hæ, hvað gerði Ragnheiður af sér um helgina ??? Fyrir utan það að vera svoldi dugleg að lesa þá var nú kíkt aðeins út á lífið á lau.. Anna kom í bæinn til mín og Beggu og við kíktum allar niðrí bæ. Kíktum fyrst Sportkaffi.. en þar voru ekkert nema sjálfstæðismenn... humm mætti bara Geir Haarde og Pétri Blöndal þegar ég rölti inn, bjóst kannski ekki við því að sjá þá á sportkaffi, klukkan var sko rúmlega 1. Við vorum ekki lengi að láta okkur hverfa, fórum þá á Hverfisbarinn, Ingibjörg vinkona hitti okkur þar, það var mjög gaman, við vorum allar edrú og í lokin voru sumir orðnir rosalega pirraðir :) hihi það lá við slagsmálum ! Svo voru sumir sko með dans dauðans á dansgólfinu.. humm.. ! Svo var audda endað á Dividos ;) Á sunnudaginn átti skvísan afmæli, byrjaði á því að fara á bókhlöðuna en hefði bara betur sleppt því. Stebba og Anna komu og við fórum á sólon, sátum þar í dágóða stund og vorum að spjalla um jólin og áramótin, ooohhhhh hvað ég hlakka til að komast í frí. Um kvöldið komu mamma og pabbi og buðu mér út að borga á Apotek, ekkert smá gott, ummmmm...... fengum okkur öll þriggja rétta máltíð og rauðvín með ;) Takk æðislega vel fyrir mig !
Hvernig stendur á því að allir rónar og sorar Reykjvíkurborgar safnist hjá Hlemmi og í strætó... hummm.... ég hef stundum verið að spá í þessu en skil ekki, allt mjög skrýtið fólk. Váá segir sveitastelpan hihi, en allavega er ég alltaf að sjá einhvera furðufugla í strætó. Var á leiðinni heim um daginn og strætóinn stoppaði í smá stund fyrir framan Hlemm en neinei þá var bara næstum því dauð manneskja sem sat upp við vegginn og 4 löggur að reyna að ráða eitthvað við hana. ég á ekki til orð, annað hvort var hún uppdópuð, ofurölvi eða bara svona hrikalega þreytt ! hún var allavega án meðvitundar, hvernig getur fólk gert sér þetta ??? Það er allavega gott að einhverjir hafa markmið í lífinu !
Huhumm.. er nú ekki búin að vera dugleg að blogga neitt upp á síðkastið vegna þess að það er alveg brjálað að gera hjá mér ! Kennararnir eru alveg að hrúga á okkur lesefni og skilaverkefnum þannig að ég get ekki einu sinni byrjað að rifja upp fyrir prófin, ekki alveg nógu gott það. En allt tekur víst enda, byrja í prófum 3.des og verð svo búin 17.des.. Það er nú ekkert merkilegt búið að vera í gangi hjá mér þannig að ég hef þetta bara stutt að sinni. :) b.t.w mín verður 21. árs á sunnudaginn ;)
Stebba vinkona kom og kíkti á mig áðan... fórum í Kringluna á kaffihús og spjölluðum yfir kaffibolla, long time no see....:) Takk fyrir daginn Stebba mín ;)
Hæhæ, skilaði ritgerðinni í gær, voða fín.. og vona ég að kennarinn minn sé sammála mér :) Langaði nú að segja ykkur frá því hvað sumir geta verið alveg andstyggilega ömurlegir... allavega, ég og Sandra vorum að læra uppá bókasafni og hún skilur tölvuna sína eftir í c.a 1/2 tíma inná lesstofu, en fór ekki langt sátum bara fyrir framan lesstofuna og þegar hún fer til baka þá er búið að stela tölvunni !!! Hún hringdi í lögguna og tilkynnti henni það að tölvunni hennar hafi verið stolið, seinna um kvöldið stöðvar löggan góðkunningja lögreglunnar á rúntinum og þá var annar þeirra með tölvuna hennar Söndru í fanginu.... helvístis dópista aumingjar !!! Síðan var brotist inní bíl hjá stelpu með mér í bekk og töskunni hennar stolið, með öllum bókunum, fartölvunni og gleraugum... það hefur ekki enn fundist. Pælið í því, öll vinnan farin í vaskinn fyrir utan það að tapa þessum verðmætum :( Jæja nóg um þessar hörmungar. Anna sótt mig í skólann í gær og gerðum við margt okkur til skemmtunar. Byrjuðum á því að fara í Kringluna, vorum nú bara hálfgerðar kleinur hehe er það ekki ? Athuguðum síðan með skartið hennar Önnu, R-1 ekki gleyma að hringja ! Elduðum síðan heima hjá mér, rosa gott samt hálf-fátæklegt :) svona er það bara ! Ákváðum svo að kíkja í bíó en vissum ekkert á hvaða mynd við ætluðum, þegar við vorum komnar inní Smárabíóið og vorum að reyna að velja einhverja mynd þá labba upp að okkur tveir huggulegir strákar :) og bjóða okkur á frumsýningu á mynd í sal 1, veit ekki hvað hún heitir, en hún var nú ekkert spes verð ég að viðurkenna ! en ekki slæmt að fá frítt í bío. Tókum svo bara rúnt í bænum.... Anna spæ og Ragga spæ hehe. Takk fyrir daginn Anna mín :)
Fór í Hæstarétt í gær og fylgdist með málflutningi, mjög áhugavert ! Jón Steinar kennari minn var alveg frábær, hann lét nú bara eins og hann væri heima hjá sér :) Það var ekkert smá gaman að sjá hvernig þetta gengur fyrir sig en samt var þetta nú frekar langdregið, var þarna í 4 tíma. Eftir málflutninginn talaði forseti Hæstaréttar við okkur og hélt smá fyrirlestur um réttarfarið. Síðan var bara brunað upp í skóla og byrjað að lesa. Fór til Steina um kvöldið og hann fór yfir ritgerðina mína :) thanks ! Ég og Sandra erum bara orðnar mjög sáttar og erum að leggja lokahönd á þessa margumtöluðu 45% ritgerð ! Jæja verð að fara að koma mér að verki, bæjó.
Elsku mamma og pabbi takk fyrir mig :) kiss kiss !
Gerði mér smá dagamun og fór á bókhlöðuna að lesa, verð nú bara að viðurkenna að það er mjög langt síðan ég hef komið hingað ! Reyndar er ástæðan fyrir því að ég er hérna sú að mamma og pabbi eru að fara að kíkja í heimsókn til mín á eftir :) hlakka ýkt til að sjá þau ! Er búin að vera frekar dugleg um helgina, fór út að labba alla morgnana, og geri aðrir betur í 2 stiga hita og 25.000 vinstigum...eða svol. hehe..! Í gær tókum við spólu, dont say a word, mjög góð mæli eindregið með henni ! Er að fara að fylgjast með málflutiningi á morgun í Hæstarétti, það verður örugglega mjög skemmtilegt, er allavega orðin svoldi spennt ! þangað til næst, bæjó !
Hæ hæ.... er alveg að lognast út af hérna fyrir framan tölvuskjáinn ! Er búin að vera að lesa frá því klukkan 11 í morgun. Var upp í skóla í gær með
Beggu eitthvað fram eftir kvöldi, pöntuðum svo pizzu á dominos... ummm gott mar. Síðan kíkti
Dísa skvísa á okkur. Horfðum á djúpu laugina, hehe.. sumir áttu nú ekki alveg heima í þáttinum, eða hvað ? :) Fór svo bara snemma heim að sofa, enda vaknaði ég klukkan 8 í morgun ! Veit nú ekki alveg með kvöldið.... langar nú svoldi að kíkja eitthvað út !
Alveg var það rosalega fyndið áðan... hehehhehehehehehhe. Ég og Begga vorum að labba í Kringlunni þegar ég sé að Atli frændi hennar Beggu er í röðinni á Subway. Ég auðvitað læt Beggu vita að hann sé þarna og hún vill alveg endilega fara að heilsa upp á hann. Ok ég bíð þarna rétt hjá og Begga labbar upp að honum og slær á öxlina á honum, sko nokkuð fast :) en neinei þetta var ekki Atli, Begga var eins og fífl, æjæj og roðnaði ekkert smá mikið, og ég hélt ég mundi deyja úr hlátri. Að Begga hafi tekið mark á mér, held nú að ég verði bara að fara að ganga með gleraugun, eða að Begga ætti að fara að kaupa sér gleraugu. Humm... allavega, þá hef ég sjaldan hlegið eins mikið, strákurinn var líka frekar hneikslaður og vinir hans hlógu eins og vitleysingar ;)
Takk fyrir skemmtilegt kvöld,
Anna mín :) Anna vinkona gerði sér dagamun og kíkti á Ragnheiði sína í gær, tókum smá rúnt um bæinn og skoðuðum "nokkur hús" hehe... sumir voru nú svolítið utan við sig ! Síðan pikkuðum við Rúnar vin hennar Önnu upp, sætur strákur, hann er með henni í skólanum. Við fórum svo á A-Hansen.. það var eitthvað bjórkvöld hjá Iðnskólanum. Það var alveg troðið þarna inni og klukkan bara c.a 11, við sátum þarna í 2 tíma og spjöllum. Þegar við vorum búin að sitja í smá stund þá koma einhverjir tveir ógeðslegir kallar og vilja fá að sitjast við endann á borðið hjá okkur, einn strákur á borðinu okkar var með einhverja stæla og vildi ekki leyfa þeim að setjast en samt svona meira í gríni. Nei nei kallinn var bara svona rosalega reiður og þá var sko voðinn vís, brutust upp þessi þvílíku slagsmál, ég var ekkert smá hrædd, þoli ekki svona stæla. Þar með sannaðist allavega að Keflavík er ekki alslæm :) Fyrir utan það var bara mjög fínt, þurfti samt að fara í sturtu um leið og ég kom heim því ég angaði eins og öskubakki, ekki boðlegt. Er komin upp í skóla núna og ætla að vera dugleg að lesa um helgina.... góða helgi !
Þvílíkt skrýtinn dagur í gær og ekki orð um það meir ! en allavega... ég fékk sendar nokkrar mynir af Kristínu Lovísu, stelpan sem ég var að passa í London. Hún er orðin rosalega stór stelpa, mjög sæt :) Gaman að sjá hvað krakkar stækka ört á þessum árum, hún verður 4 ára í nov. Ég og Sandra skiluðum öllum bókunum sem við fengum lánaðar í Lögbergi, hehe... það fattaði enginn neitt ! um kvölið fór ég út að labba og þegar ég var á leiðinni heim, tóku Gunnar og Steini mig uppí og eins og vanalega þá fékk ég audda "bryggjurúnt" :) það er sko enginn rúntur án þess að kíkja á "stóru" skipin. Svo fær maður að vita hvað vélarnar eru stórar og....... æji þeir eru svosem alveg ágætir, Takk fyrir rúntinn ! Er núna in School voða gaman :) tíminn fer alveg að fara að byrja þannig að mín þarf að fara að logga sig út. síjú !
O my gad... það er tæpur mánuðum í prófin !!! :( maður verður nú að fara að byrja að leggja allt á minnið sem maður er að lesa !
Þvílík ritgerðar-helgi, það komst sko ekkert annað að ! Begga kom til mín í gær í HR að læra og þegar við vorum alveg komnar með nóg og orðnar ýkt svangar ákváðum við að fara heim til Beggu og elda okkur eitthvað gott. En þegar við komum út þá lá bíllinn í götunni, það var s.s sprungið :( Begga keyrði svo á felgunni á Bensínstöðina bak við Kringluna og við ætluðum að reyna að skipta um dekk sjálfar. Byrjuðum á því að vera þvílíkt þrjóskar og ætluðum sko að gera það sjálfar en ekkert gekk, náðum ekki einu sinni dekkinu úr skottinu. Endaði bara með því að Begga pumpaði lofti í dekkið og við brunuðum út í búð og tókum svo spólu. Svo var bara pig-out :) ég var svo komin bara snemma í háttin enda mætt hingað kl. 10 í morgun ! jæja have to go, bæjó !
váá þvílík hamingja :) mín var að horfa á Djúpu laugina, og sumum er bara ekkert sleppt ! Veit nú ekki alveg hvað er málið með það að vera að halda svona ellimannaþátt, greyið maðurinn var alveg ekki að skilja þetta "á ég að svara ?" hehe, svo virtist bara sem hann hefði engan áhuga á að hlusta á það sem þær voru að segja ! jæja svona er þetta. Það verður víst að vera jafnræði á meðal vor ! En það er þó alveg hægt að fullyrða að gamla fólkið getur sko skemmt sér vel við harmonikkuspil og kórsöng :) dúllur ! Burt séð frá því þá hefur verið alveg rosalega mikið að gera hjá mér og við erum að vinna alveg á fullu í ritgerðinni, og það er óhætt að segja að okkur miðar nú bara nokkuð vel áfram, ætlum að hittast klukkan 8 í fyrramálið og vera eitthvað fram eftir degi. Kíkti aðeins til Beggu vinkonu og hún bauð mér uppá pitsu og kók, það er sko hugsað vel um vinkonuna, takk fyrir mig :) Váá ég kíkti aðeins í kringluna í dag og það er búið að setja upp jólaskraut, er ekki alveg örugglega 1.nov ? ég er ekki einu sinni búin að eiga afmæli, finnst þetta nú frekar snemmt ! Hver er svosem kominn í jólaskap í byrjun nov? allavega kemst ég ekki í jólafílinginn fyrr en eftir próflok !!! well... verð að fara að koma mér heim í bólið, chaio !