Ragnheiður P
Er loksins búin að setja loftnet á sjónvarpið mitt, já setja það á sjónvarpið. Er með svona uppá sjónvarpinu sem stendur alveg upp í loftið svoldi skrýtið ! Get allavega horft á fréttir á stöð 2 og svo náttla stöð 1, er samt ekki alveg nógu sátt því að ég næ ekki skjá einum :( það þarf víst örbylgjuloftnet til að ná henni ! Er byrjuð að vinna í ritgerðinni minni, ég og Sandra gáfum okkur það Bessaleyfi og fórum uppí Lögberg og mokuðum út af safninu fullt af hagnýtum heimildum :) hehe þannig á það að vera !
Rosalega er tíminn fljótur að líða.. er bara alveg að fara aftur í bæinn eftir alveg hreint yndislega helgi hérna heima :) Kíkti heim til Stebbu í gær, Anna og Ingibjörg voru þar, við horfðum á Djúpu og vorum svo bara að spjalla og hafa það kósý. Ég veit nú ekki alveg hvort að þessi Djúpa laug sé eitthvað að gera sig, allavega finnst mér þetta svoldi nördalegt, hver lætur eiginlega hafa sig út í svona vitleysu, hehehe :) Þegar líða tók á kvöldið þá kíkti ég með Stebbu á Duus, vorum þar í smá tíma og tókum svo smá rúnt út í Sandgerði, gengið hennar Stebbu var þar á einhverjum tónleikum, skutaði henni þangað og fór svo bara heim. Fór í sund í morgun og tók smá sundsprett, kíkti svo í gufuna, rosalega er gott að slappa aðeins af í gufunni, hún er alveg einstök :) fór svo uppá bókasafn og var þar eitthvað fram eftir degi. Anna bauð svo Röggu sinni smá rúnt, og það var sko kjaftað..... mikið í gangi !!! Var svo að lesa til 10 og kíkti svo til Önnu, Ingibjörg var þar og við vorum bara eitthvað að tjatta. Þær voru svo á leiðinni í bæinn þannig að mín ákvað bara að fara heim að sofa, fer svo í bæinn á morgun. Hey sjáið hvað síðan mín er orðin fín, er svodi stolt.... vantar samt smá spotta til að draga mig í land ! jæja verð að fara að koma mér upp í rúm, góða nótt og sofið rótt !
Home sweet home :) er komin heim í keflavíkina. Var uppí skóla í allan dag með Söndru, vorum að reyna að byrja á ritgerðinni í aðferðafræðinni, okkur miðaði nú lítið áfram enda fer mesta vinnan í heimildarleitina ! Langar helst að klára hana sem fyrst, við höfum 2 vikur til stefnu :) Það er ekkert sérstakt plan um helgina, ætla allavega að njóta þess að láta aðeins stjana í kringum mig ;) svo audda að kíkja á gengið !!!
Anna vinkona kíkti á mig og Beggu gær, fórum smá rúnt í bænum og kjöftuðum og kjöftuðum, það er sko mikið í gangi hjá sumum ; ) mjög gaman ! Var að vinna við lokaverkefni í upplýsingatækni áðan, vorum nokkur saman og hjálpuðumst að, er þá búin með það fag :) jibbý, næ allavega einu :þ. Ég og Begga erum uppí skóla og ætlum að lesa eitthvað fram eftir kvöldi.... B.T.W ég veit nú bara nánast ekkert hvað er að gerast í heiminum, er ekki með tengt lofnetið heima á Dunhaga. Annars er alltaf hægt að kíkja á imbann hérna í skólanum, en það er oftast einhver að horfa á Friends eða eitthvað slíkt :( ekki alveg sátt. Fer í kef... á morgun, pabbi ætlar að taka mig með heim þegar hann er búinn í skólaum um 18:00, until then... have fun :) bæjó
Hæhæ... er loksins búin í öllum miðannarprófum, þegar litið er yfir heildina þá gekk mér alveg ágætlega. Núna tekur bara við verkefnavinna og ritgerðir :) Ætla að fara í Keflavíkina um helgina og byrja að vinna í ritgerð sem gildir 45% af heildareinkunn.... það er eins gott að gera eitthvað af viti núna ! Ég og Begga fórum í Outlet í Skeifunni og keyptum okkur sitthvað...:) æji ég er svo mikið eyðslukló ! svo fórum við heim til mín að læra. Ég og Begga erum farnar að venja komu okkur oftar hingað í HR það er mjög fínt að læra hérna, allavega á kvöldin því þá fær maður nægan frið. Ætlum að fara seinnipartinn í dag og vera alveg ýkt duglegar :) jæja núna er ég á leiðinni heim... verð að taka smá nap... reyna að vinna upp svefn "það er hægt" þó að margir fræðimenn hafa sagt að það sé ekki hægt !
Hola mi amigos :) Elsku Amma og afi buðu mér í lambalæri í gær, umm... amma er svo góður kokkur :) síðan tók ég smá kríu og fékk svo skutl heim og kom mér í gírinn fyrir kvöldið ! Fór í tollarapartý hjá Steina, það var mjög fínt, en þurfti að fara svoldi snemma því sumir voru orðnir svo "þreyttir" Begga sofnaði næstum því á öxlinni á mér hehe. Vinur hans Gunnars skutlaði okkur svo í bæinn, byrjuðum á NASA svo kíktum við pínu á Astro, þökk sé Gutta og gellu ! En djammið var samt ekki alveg að gera sig.... enginn huggulegur :( Eftir mikla tilraun til að redda okkur fari heim, þá enduðum við í Taxi... en svo sótti Gunnar á BSÍ þar sem við sögðum bara bless við Taxi kallinn. Fengum okkur að borða á Devidos ummm mjög gott. Sáum smá í logann á Laugarveginum, þetta var hrikalegt :( eldurinn logaði ekkert smá bjart og það var reykmökkur yfir allri borginni ! Er búin að vera uppí skóla í allan dag að lesa fyrir próf sem ég fer í á þriðjudaginn, kvíður rosalega mikið fyrir, en maður verður bara að standa sig. Eftir lítinn svefn og mikla þvinku held ég bara að ég fari að koma mér heim.... adios :)
JIii...ég hef nú bara alltaf haldið að hann hafi lesið yfir sig, en ekki er öll vitleysan eins...hann lenti víst á einhverju sírutrippi, eða svo segir Begga vinkona. Ætli stelpan hafi einhverjar áreiðanlegar heimildir ? ég verð að fara að komast að því !! :)
Var að koma úr prófi úr kröfurétti.. gekk bara nokkuð vel. Ég veit nú ekki hvað ég ætlaði að þykjast vera í gær, ætlaði mér sko að vaka alla nóttina. Fór út í búð og keypti magic og alles :) Þegar klukkan var að ganga 2:30 þá ákvað ég að leggja mig í smá stund en vaknaði svo klukkan 7, næstum því búin að missa af strætó hehe. En mætti á réttum tíma í prófið og held bara að ég hafi gert mitt besta :) Er núna alveg að leka niður og verð að fara heim að leggja mig, þarf af safna orku fyrir næsta próf sem er í stjórnskipunarrétti á þriðjudaginn !!! Er komin í helgarfrí, eina ferðina enn, jibbý jibbý. Ég og Erna vinkona mín sem er með mér í the school ætlum að kíkja aðeins út í kvöld, á kaffihús eða eitthvað sniðugt, allavega held ég að maður eigi það fyllilega skilið !
Uff.... er búin að vera bara alltof lengi hérna inni, klukkan er að verða 21:30 og mín er búin að vera í skólanum frá 8 í morgun. Er að fara í próf á morgun og er búin að lesa og lesa og lesa, bráðum verð ég eins og kallinn sem las yfir sig, muldrandi á labbinu í Keflavíkinni með pobb og kók í glærum plastpoka, o mí god ég verð að fara að koma mér heim ! Sandra er búin að vera hérna með mér og við tókum okkur smá pásu áðan og fengum okkur að borða og svol. Rúna vinkona á afmæli í dag, til hamingju elsku Rúna mín ! annars bjallaði ég í hana áðan og það var eitthvað fólk að tínast inn til hennar í kökur og fínerý ! Er búin að fá nokkrar einkunnir fyrir það sem ég hef verið að gera og er bara nokkuð sátt :) jæja verð að fara að taka strætó ! gutten nacht !
Langt síðan maður hefur bloggað, sorry sorry ! Það er bara svo mikið að gera að maður gefur sér ekki tíma til að blogga smá handa ykkur dúllurnar mínar :) Annars kemst voða lítið annað að þessa dagana en skólinn, er á fullu í miðannarprófum, fór í eitt í síðustu viku, fer í eitt á fimmtudaginn og svo eitt í næstu viku. Gerði gæða innkaup í gær, fór í Bónus eftir skóla og gerði vikuinnkaupin... það borgar sig að versla í Bónus þegar maður er fátækur námsmaður. Kíkti svo á Þjóðarbókhlöðuna og var þar til klukkan 10, svo ætluðum við Begga að fara saman í smá göngutúr en þar sem Begga var í svo lélegum skóm í fyrradag þá er hún með svo mikil hælsæri að hún treysti sér ekki með mér. Þannig að ég fór bara ein og hjóp hringinn minn, ýkta dugleg ;) enda þýðir ekkert annað !
Bogamaður - 12.10.2002
Þú ert eflaust sífellt að prófa nýjar aðferðir af einhverjum ástæðum. Aðlögunarhæfni einkennir þig sem og mislyndi en lund þín virðist gera þig á stundum ljúfa/n sem lamb en þá ert þú oftar líkari kettinum, samvinnuþýð/ur þegar þú ert forvitin/n. Hérna sekkur þú þér niður í hugðarefni þín út október mánuð.
Elsku vinkonur,
Anna, Stebba,
Begga,
Ásdís, Hjördís,
Ingibjörg, Rúna og litla kúlan hennar... Takk æðislega fyrir gærkvöldið :)
Loksins loksins er þessi dagur kominn sem ég er búin að bíða eftir í langan tíma.... Það er saumó á eftir hjá Stebbu vinkonu og við erum að fara að hittast allar í 1.skipti í mjög langan tíma :) hlakka ýkt til ! Verð nú að fá að klappa kúlunni hennar Rúnu ;) Stebba sótti mig í dag og við fórum að versla fyrir kvöldið í Bónus. Ætluðum svo að sækja Ingvar uppí skóla en vorum víst frekar fljótar á okkur hehe. Fórum uppí skóla og ég prentaði út nokkra fyrirlestra, því að ég er að fara í próf á fimmtudaginn í Kröfurétti ! Þegar heim var komið fékk ég mjög hlýjar móttökur frá mömmu og pabba :) þau eru svo frábær ! Fór svo á bókasafnið og las í dágóðan tíma, er núna komin heim aftur og þarf að fara að gera mig ready fyrir kvöldið :) bæjó !
Hola amigos. Ég og Anna gerðum ansi margt skemmtilegt í gær :) Kíktum smá rúnt og tókum smá laumu í miðbænum ;) var það svartur gólf eða rauður ford ka ? Djöfull er nýja húsið "Kauphöll Íslands" geggjað, hönnunin er ekkert smá vönduð og flott ! Kíktum í Smáralindina, svoldi flott í Zöru ég verð nú bara að játa það, kannski fannst mér bara allt flott af því að ég á engan pening til að vera að kaupa mér föt :( Fengum okkur svo að borða á Nings "heilsurétti" mjög gott, var bara að koma þangað í 1.skipti. Anna fór svo í ljós í Gullsól og á meðan gleymdi ég mér alveg í blöðunum á biðstofunni, sá meðal annars sæta vininn hans Davíðs frænda :) sko í Mannlífi, hehe. Brunuðum svo heim á Dunhagann en þá datt okkur allt í einu í hug að fara á handboltaleik, já er það ekki Anna ? það var nú bara mjög skemmtilegt, Grótta-KR á móti KA ! Var komin heim um 22 þá hringdi Gunnar og bauð mér á rúntinn með honum og Steina, þeir eru sko alveg ekta rúntarar :) þegar ég var að fara út úr bílnum þá gleymdi ég símanum mínum... damn.. og gat náttla ekki hringt eða neitt og látið þá vita. Þar sem síminn er mín eina vekjaraklukka þá svaf ég yfir mig í morgun eftir ítrekaða tilraun í gærkveldi til að stilla einhverja eldgamla útvarpsvekjaraklukku. En held að ég hafi gert met í morgun, ég opnaði augun um 7:55 og var komin út úr húsi kl 8:00, geri aðrir betur :) missti s.s ekki af strætó en mætti samt 7 mín. of seint í tíma ! Er núna komin í helgarfrí, ætla að fara í Kef... á morgun :) þangað til næst, farið vel með ykkur :)
Jæja var að koma úr prófi í fjárhagsbókhaldi, gekk bara ágætlega.... en held samt að ég sé búin að lesa þetta svo oft yfir að ég er byrjuð að rugla, en það kemur í ljós ! Það er frí í tíma hjá Ragnhildi þannig að ég er búin í skólanum í dag. Var niðrá bókhlöðu í gær til kl. 22 og fór þá út að labba, ekkert smá gott veður :) Oj.. sá einn mann á bókhlöðunni sem ofsótti mig á fös... hann þorði ekki einu sinni að líta framan í mig hehehe, honum var nær ! Hvað var þetta eiginlega með buxurnar sem hann var í, var búið að cutta niður af þeim ??? Það er ekkert smá mikið af furðulegu fólki á þessari blessuðu hlöðu, þið ættuð bara að kíkja þarna einhvern tímann. Náttla fullt af venjulegu skólafólki sem hættir svo að koma þangað þegar það hefur lokið námi en svo er aftur á móti fólk "mjög skrýtið fólk" og sérfróðir prófessorar sem eru þarna öllum stundum. Jæja nóg með það, held ég komi mér heim og kíkji svo á hlöðuna ;) hehe
Hvað gerði ég nú af mér um helgina..... Byrjaði helgina á því að fara í strípur og klippingu, þótt fyrr hefði nú verið, það var sko orðið ástand á minni, c.a 4 cm litaskil eða svo ! Fór í
óvissuferð með lagadeildinni á föstudaginn, byrjuðum á því að fara á rúntinn í rútunni, bílstjórinn var eitthvað að reyna að rugla okkur í ríminu, hvar haldið þið svo að hann hafi farið með okkur.. út á Nes... þar stoppaði rútan á Eiðistorgi fyrir framan leikskólann. Við vorum náttla mjög undrandi og vissum nú ekkert hvað við vorum að gera þar. Fórum þá í ratleik, mjög skemmtilegur, áttum meðal annars að syngja fyrir kallinn í auðlindasölunni (bensínstöðinn), búa til hálsmen, semja ljóð og í lokin áttum við að leysa krossgátu sem leiddi okkur á loka stað s.s í sjálfstæðissalinn, þar var boðið uppá pizzu og bjór. Síðan var bara drukkið og spjallað og þegar fólk var komið svoldi vel í'ða þá var okkur kennt að dansa country... ekki alveg að gera sig, hehe. Fórum svo á Hverfisbarinn, Begga kom svo þegar líða tók á kvöldið. Skemmti mér bara alveg þrælvel :) Laugardeginum var svo bara varið í lestur, svo elduðum við Begga ljúffengan kjúklingarétt, namminamm ;) Er búin að vera á bókhlöðunni í allan dag, tók reyndar smá matarpásu, Begga bauð mér í fisk og fínerý, mjög gott hjá stelpunni :) er núna búin að vera svoldi lengi í tölvunni og verð að fara að hætta.... sí jú later
Gærdagurinn var algjört brjálæði... var líka út úr heiminum allan daginn allt of upptekin við námið. Var að leggja lokahönd á raunhæfa verkefnð mitt í kröfuréttinum og skilaði því í morgun, nokkuð sátt ! Er komin í helgarfrí... jibbý :) það er óvissuferð á morgun hjá lagadeildinni og það verður geggjað djamm hjá okkur, svo verður endað á Hverfisbarnum þar sem allar deildirnar hittast. Ég og Begga vorum nú alveg að tapa okkur í gær... held við séum með alsheimer light ! fórum niðrí tæknigarð og vorum að prenta út, Begga geymdi öllu sem hún var að prenta út og ég gleymdi tölvudiskinum mínum :( ekki alveg nógu gott ! Jæja verð að fara að koma mér heim.
Tók smá laugarvegsrúnt með Beggu í gær og fékk að heyra allt slúðrið frá kef... Begga skrapp í kef í nokkra klukkutíma og kom til baka með þvílíkan slúðurfréttabanka :) Fékk að sofa út í morgun, mætti ekki í skólann fyrr en 10 váá enginn smá munur ! Eftir skóla fór ég í Bónus með Beggu og verslaði inn fyrir vikuna, ummm keypti helling gott ! Svo var ferðinni heitið á Bókhlöðuna, er búin að vera hér frá því klukkan 6 í dag og það lokar eftir smá.. en á samt eftir að lesa fullt þannig að ég verð að hætta þessum skrifum. Góða nótt :)