<$BlogRSDURL$>
Ragnheiður P
mánudagur, september 30, 2002
  Guð minn góður... ég verð nú bara að segja ykkur frá því að það býr geðveik kona á 1.hæðinni heima ! Á sunnudagskvöldið í síðustu viku kom ég svoldi seint heim og þegar ég kom inná gang þá opnaði hún hurðina á íbúðinni sinni og gaf mér líka þetta hrikalega augnaráð. Þessi kona var einu sinni hjúkka á geðdeild og giftist manni af deildinni. Þegar ég kom inní íbúðina mína þá byrjar kellingin að hringja dyrabjöllunni, hún liggur á bjöllunni í dágóðan tíma. Ég náttla drulluhrædd og þorði ekki til dyra. Síðan hringjir Sigrid, leigusalinn minn, svo 5 mín eftir öll lætin í bjöllunni og talar eitthvað um að það leki vatn frá 3.hæð niðrá 1.hæð og biður mig um að fara ekki í bað, ok ekkert mál. Nei nei morguninn eftir þegar ég er á leiðinni út, þá labbaði ég í fangið á límbandi og á því hékk bréf. Geðveika konan bað mig um að koma við hjá sér áður en ég færi út...ég hélt nú ekki, en þegar ég var á leiðinni niður stigann þá opnar hún hurðina..... Hún fer eitthvað að röfla um að ég hafi farið í sturtu í gærkveldi sem ég gerði ekki, og með þeim afleiðingum hefði vatn byrjað að leka frá 3.hæð til hennar á 1.hæð. Ég get svo svarið það, ég sagði henni að ég hafi ekki farið í sturtu og rauk svo út, var alveg að missa af strætó. Svo í þessari viku þá fær Sigrid bréf frá kellingunni, hótunarbréf !!! Það er sko ekki allt í lagi, það ætti nú bara að leggja kellu inn. :) hehe svo í gær þá var Sigrid að sýna mér þvottavélina þá kom kella niður og var eitthvað að rífa sig, hún sagðist þá ætla að hringja á "lögregluna" ef ekkert yrði gert í málinu. Ég talaði um það við hana að hún ætti ekkert að vera að tala um eitthvað sem hún vissi ekkert um þá var hún alveg vitlaus og talaði um að hringja á lögregluna. Svo hlógum við Sigrid bara þegar hún var farin, það er sko ekki allt í lagi með suma. Ég ætti kannski bara að bjóða kellu uppá kaffi og með því í kvöld....... eða bara ekki !  
laugardagur, september 28, 2002
  Hæhæ er komin heim til Beggu eftir mjög skemmtilegan dag... í gærkveldi kom Anna til mín og kíkti á herbergið mitt, svo kíktum við niðrí bæ, byrjuðum að fara á Hverfisbarinn þar sem við fengum svaka show frá einum barþjóninum, ýkt flott hjá honum ;) Síðan fórum við á Kaupfélagið sáum það tvo huggulega.... "frændinn" humm.... síðan droppuðum við inná Sólon, ekkert spes þar, það var einhver gella á dansgólfinu með einhverja þvílíka tjáningu hehe ! Enduðum á því að taka smá rúnt. Vaknaði svo snemma og fór á bókhlöðuna, á að leysa raunhæft verkefni í kröfurétti, s.s ég er að leika lögfræðing :) Gaman af því. Síðan komu Stebba og Anna mér heldur betur á óvart, ég hélt að Stebba væri bara að koma ein til mín og hringdi í hana til að reyna að vísa henni leiðina, svoli áhyggjufull um Stebbu litlu, beið í glugganum, en þá var Anna allt í einu í framsætinu... mér til mikillar gleði :) Við fórum á Grænan kost, þar sem Venus sæti afgreiddi okkur, svo kíktum við í Kolaportið. Ég verð nú bara að viðurkenna að ljóminn af Burberrry er nú aðeins farinn að minnka eftir þessa kolaportsferð :( Er núna að komast í gír..ég og Begga ætlum að kíkja niðrí bæ á eftir...í smá óvissuferð :) Bið að heilsa ykkur ! 
föstudagur, september 27, 2002
  Ragnheiður er komin í helgarfrí...það fer nú samt lítið fyrir því að það sé frí, rosalega mikið að gera. Á að fara að leysa verkefni í kröfurétti sem gildir 5% af lokaeinkunn. Finnst ýkt leim að komast ekki í kef um helgina, langar svo að sjá kúluna hennar Rúnu vinkonu :) en það verður bara að bíða betri tíma. Við Anna ætlum að vera menningarlegar í kvöld og kíkja á kaffihús í bænum, kíkja á sætu strákana ;) Svo er aldrei að vita hvað verður gert annað kvöld !!!  
miðvikudagur, september 25, 2002
  center>




Take this Quiz
 
  Jæja er uppí skóla og var að klára verkefni sem ég á að skila næsta mán.... ! Fór uppá bókhlöðu í gær og var til klukkan 10, ég og Begga ætluðum að vera rosa duglegar og fara út að labba þegar við komum heim en nenntum því svo ekki, æjæj.. ekki alveg nógu gott mál. Er að spá í að fara heim og kíkja í laugina... Vesturbæjarlaugina, hef nú bara aldrei farið í hana áður :) einhvern tímann er allt fyrst. Ég bið að heilsa öllum sem mér þykir vænt um :) hafið það gott.... 
þriðjudagur, september 24, 2002
  Hola amigos ! Elsku Stefanía mín, til hamingju með daginn kiss kiss :# En núna í dag eru akkúrat 2 mánuðir í það að ég á afmæli :) Er stödd uppí skóla var að koma úr umræðutíma í Stjórnskipunarrétti. Þarf að vera dugleg að læra fyrir bókhaldið sem er á morgun, svoldið erfitt ! Ætla að kíkja á bókhlöðuna í kvöld, reyni að dobla Beggu með mér... allavega bless í bili ! 
sunnudagur, september 22, 2002
  Hallo allir saman.... er komin á bókhlöðuna og er búin að vera að lesa í smá stund.. í Kröfurétti, nokkuð gaman af því :) Í gær bauð afi hennar Beggu okkur út að borða á Hótel Sögu.... ekkert smá gott, fékk mér kjúklinga salat. Þegar líða tók á kvöldið þá var farið í sparigallan og ég, Anna, Begga, Ingibjörg og Þórhildur fórum á NASA... það var alveg geggjað stuð, vorum allar edru og skemmtun okkur ýkt vel. Dönsuðum svoldið mikið, svo var Steinunn pæja með show, eitthvað dans-show með Booie nights og við vorum svo að dansa með henni eitthvað í restina. En hvað var þetta með okkur stelpurnar þegar við fengum okkur sæti? það var nú bara fyndið. Vel á minnst, ég fékk rós í gær... það kom bara einhver drengur upp að mér og færði mér þessa fallegu rauðu rós... :) Uppúr 4 lagði gengið af stað heim... var ekkert smá þreytt enda vaknaði ég eldsnemma í gærmorgun. Mamma er að fara að koma til mín á eftir að við ætlum að taka smá ömmu rúnt í Reykjavíkinni.... :) þangað til þá þá verð ég að halda áfram..... bæjó ! 
laugardagur, september 21, 2002
  Hæhæ er eiginlega ekki búin að hafa neinn tíma til að blogga undanfarið.... brjálað að gera hjá minni !
Í gær var ég uppá bókhlöðu til að ganga 6 og svo fórum við Begga heim til Beggu og elduðum ýkt góðan kjúklingarétt og svo var það nammiát dauðans :) Tókum svo spólur og höfðum það gott, en sumir voru nú ekkert á því að fara að taka tjillið með spólurnar og vildu bara kíkja á djammið en aðrir voru svo þreyttir að svefninn var bara tekinn uppúr miðnætti.... En smá saga sem er nú varla frásögum færandi, huhumm ég, Begga og Dísa fórum á lagersölu í Bæjarlindinni í gær og ein af okkur keypti sér voða fína skó en þegar heim var komið og þegar hún ætlaði að máta fínu skóna sína þá kom það í ljós að þeir voru báðir hægri skór..... HEHEHEHE.... og það var sko glatt í höllinni þá :) allavega hjá sumum ;) Núna er ég mætt á bókhlöðuna með Beggu og við ætlum að vera ýkt duglegar í dag og á morgun og ætlum að verðlauna okkur með því að kíkja á NASA í kvöld og taka smá tjútt á dansgólfinu :) síya!!! kiss kiss :# p.s "Begga ætlar þú í nýju skónum á djammið í kvöld ?" ;) hihi 
þriðjudagur, september 17, 2002
  Hæ hæ :) Uppgjör helgarinnar. Á föstudaginn nýtti ég daginn í lestur og að undirbúa flutning. Kíkti svo um kvöldið á Stebbu og Ingvar. Á lau... fór ég með mömmu í bæinn og við tókum stefnuna á Dunhagann þar sem ég bý núna og fluttum litlu búslóðina mína inn. Ath upp á 4.hæð... þetta var sko líkamsrækt fyrir alla vikuna ;) Svo vantaði mig skrifborð þannig að mamma og pabbi gáfu mér skrifborð í afmælisgjöf, við fundum það í TM-húsgögnum. Mjög flott skrifborð alveg í stíl við fataskápinn ! Seinni partinn kom pabbi með rúmið mitt og sitthvað fleira. Mamma og pabbi yfirgáfu litla blómið sitt upp úr 6 og þá gerði mín sig klára fyrir djammið. Fór í innflutningpartý hjá Beggu vinkonu og Kiddu roomy.. það var alveg geggjað stuð. Huhummm Árni vinur hennar Beggu ætti nú að passa !!! Hvar er heiðarleikinn hjá sumum ? Ég, Anna, Ingibjörg og Stebba tókum svo taxa niðrí bæ og fórum á Nasa, það var geggjað stuð, dansaði og dansaði og dansaði ! Eftir Nasa fór ég með Önnu á Astro og þar hélt dansinn áfram.. við verðum bráðum atvinnumenn í dansi ;) ég er nú ekkert lagt frá því, hehe. Fór heim um c.a 5 eftir mjög vel heppnað djamm. Svaf fyrstu nóttina í herberginu mínu :) tatata !!!! Sunnudagurinn fór aðallega í þvinku en kíkti samt á Beggu og horfði á brúðkaupsþáttinn já, o my gad, það var ekkert smá fallegt :) Lærði svo um kvöldið. Until later. hafið það gott ! 
þriðjudagur, september 10, 2002
  Hehe læstist úti áðan, skrapp aðeins út í bílskúr með þeim afleiðingum að hurðin læstist á eftir mér. En ég dó sko ekki ráðalaus... fann eitthvað skrúfjárn útí skúr og reyndi að opna fyrir vaskahúsgluggann... það gekk nú ekki svo vel, þá kom Sibbi bjargvættur og bjargaði mér. Sunna kom á svæðið og fylgdist með aðferðunum.. hey, það var bara næstum "tollaraparý" gaman af því. Sibbi fór einhvern veginn að því að opna gluggan og svo náði ég í garðstól og prílaði inn..... fimleikarnir í den komu s.s að góðum notum :)
Æjæj mamma og pabbi eru að fara í flugvél á morgun 11.sept. þau eru að koma heim úr vikuferð frá Costa og fengu þennan heppilega dag til að fljúga heim.... Góða ferð mamma og pabbi I love you :)
 
sunnudagur, september 08, 2002
  Var mjög dugleg og samviskusöm alla helgina, enda þýðir bara ekkert annað :) Um kvöldið fór ég með Önnu, Fjólu og fullt af fólki á ljósanótt. Við röltum niðrí bæ í góðum gír og veðrið var alveg geggjað, blankalog og nokkuð hlýtt. Hlustuðum á bæjarbandið og fl. taka nokkra góða smelli við miklar undirtektir bæjarbúa... allir trölluðu með og skemmtu sér frábærlega. Svo kom að því að það var slökkt á ljósastaurunum og "Islendingur" kom til Keflavíkur..... hann var glæsilegur, það var búið að lýsa upp seglin þannig að þetta var ekkert smá fögur sjón. Þar á eftir tók Einar 'Agúst ljósanæturlagið "velkomin á ljósanótt" og Jóna og Anna sungu með :) hehe kannski doldi hátt !!! Svo kom að hápunkti kvöldsins og það var flugeldasýningin hún var ekkert smá flott......... ég heyrði í fréttunum að það hafi verið um 20.000 manns í kef... um kvöldið, enginn smá fólksfjöldi Vááááá !!!
Fór svo bara snemma í háttinn og vaknaði snemma til að lesa. Amma bauð mér og Eyþóri í mat í hádeginu umm..... amma stendur alltaf fyrir sínu :) 'Eg brunaði svo í bæinn og var uppí skóla frá 2-8 að lesa Helgin er á enda og ég er bara nokkuð sátt !
Hejhej ;) 
fimmtudagur, september 05, 2002
  Þá er maður alveg að komast í gang í skólanum, var uppí skóla til að ganga 11 í gærkvöldi að vinna við verkefni í upplýsingatækni. Svaf svo í bænum, nennti engan veginn að keyra heim. Fór í fjóra tíma í morgun var búin um 12 og er því komin í "helgarfrí" s.s á ekki að mæta í skólann fyrr en á mánudaginn :) en þrátt fyrir það þá er alveg nóg að gera. Mamma og pabbi fóru til Costa í gær þannig að ég hef bílinn, ekkert smá þægilegt ! Jæja þá er Ljósanótt í Reykjanesbæ um helgina, það verður mikið um að vera og er búist við mikilli þátttöku bæjarbúa. Þannig að það er eins gott að vera dugleg í dag og á morgun svo að ég geti nú aðeins kíkt út á lau...
Until next, bæjó ! 
sunnudagur, september 01, 2002
 
Which Sex and the City Player Are You? Find out @ She's Crafty
 
  Það var ekkert smá gaman á Sálarballinu í gær, hittumst fyrst heima hjá Önnu og fórum svo í partý hjá Öddu og Jónu í Njarðvík, hitti þar Heiðrúnu, stelpu sem er með mér í lagadeildinni. Síðan var lagt af stað í Stapann um klukkan 1 og það er ekkert smá langt síðan ég hef skemmt mér svona vel á djamminu hérna í Kef.. Það voru allir þarna, af okkur vinkonunum voru ég, Anna, Begga og Ingibjörg. Eftir ballið fengum við Anna far heim til Önnu, þar var smá eftirpartý.... Anna, takk fyrir skemmtiatriðið, það var alveg geggjað :) gæti endalaust hlegið að þessu ! Er svoldið þunn núna en ætla samt að reyna að vera dugleg í dag !
 
Fyrir þá sem ekki vita en eru mjög forvitnir þá er þetta bloggið hennar Ragnheiðar. Ég er 22. ára Keflavíkurmær sem stunda nám við Háskólann í Reykjavík og bý því nú á studentagörðunum. E-mail og msn: ragnheidur81@hotmail.com

Gestabókin mín

Powered by TagBoard Message Board
Name

URL or Email

Messages(smilies)

Skemmtileg blogg
Anna Ósk
Dísa skvís
Begga
Hjödda
Alda
Sirrý
Anna Alberts
Birna Rún
Gutti
Járnskvísan

Gamalt og krafsandi
07/01/2002 - 08/01/2002 / 08/01/2002 - 09/01/2002 / 09/01/2002 - 10/01/2002 / 10/01/2002 - 11/01/2002 / 11/01/2002 - 12/01/2002 / 12/01/2002 - 01/01/2003 / 01/01/2003 - 02/01/2003 / 02/01/2003 - 03/01/2003 / 03/01/2003 - 04/01/2003 / 04/01/2003 - 05/01/2003 / 05/01/2003 - 06/01/2003 / 06/01/2003 - 07/01/2003 / 07/01/2003 - 08/01/2003 / 08/01/2003 - 09/01/2003 / 09/01/2003 - 10/01/2003 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 /


Powered by Blogger