Ragnheiður P
Váá loksins..... var að setja inn gestabók, endilega skrifið mér smá línu :)
p.s hún er staðsett hérna efst til vinstri.
Er búin að vera að lesa í allan morgun til að geta haft góða samvisku í kvöld. Ætla á sálarball í Stapanum :) það verður geggjað stuð !!!
Ætlum að byrja heima hjá Önnu í góðra vina hópi, mamma hennar og pabbi eru í Köben... svo verður kíkt í Stapann þegar líða tekur á kvöldið.
Það ríkir gríðarleg stemmning í bænum fyrir þessu balli svo að ég býst við því að það verði svaka fjör.
Góða skemmtun í kvöld, vonandi sé ég þig á ballinu. Kv. Ragnheiður
Það er búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér alla vikuna hef ekki einu sinni getað gefið mér tíma til að blogga. En fyrsta skólavikan hefur gengið bara mjög vel, engin smá viðbrigði að koma úr fs og fara svo í háskóla. Ekkert smá mikið sem við eigum að lesa.... veit nú ekki alveg hvernig ég kemst yfir þetta allt saman. En ég ætla að standa mig vel ! ;) Fór í cocktail-boð í gær í skólanum, það var verið að fagna stofnun lagadeildar við HR. Guðfinna S. Bjarnadótti rektor, Þórður S. Gunnarsson forseti lagadeildar og Davíð Oddsson forsætisráðherra fluttu ávörp og fögnuðu stofnun deildarinnar. Þetta var mjög flott og skemmtilegt boð og svo hittumst við laganemarnir á kaffi Victor og þar var fjörinu haldið áfram. Líst mjög vel á samnemendur mína og er nú þegar búin að kynnast góðu fólki ;) Er búin að vera að lesa í allt kvöld og ætla nú að hvíla mig og kíkja aðeins út með Ingibjörgu. Þangað til næst.... Bless Bless !!!
Well well síðasti vinnudagurinn upprunninn.... mjög fínn dagur. Bakaði kökur í gær og fór með í vinnuna í dag og þær vöktu mikla lukku :) umm... mjög góðar !
Fyrsti kennsludagur er á morgun og ég er bara nokkuð vel undir það stemmd, búin að vera að lesa lagakenningar yfir helgina, gaman gaman !
Var að eignast nýja frænku... eða bróðir hans pabba var að fá til sín skiptinema :) er það ekki hálfpartinn frænka mín hihi....eða hvað ?
Anna fékk smá kast í gær og breytti öllu í skúrnum þannig að ég verð að fara að kíkja á útkomuna... bæjó !
Fór á kynningardag í skólanum mínum í gær, það fór allt mjög vel fram... byrjuðum á því að skrá okkur í hópa og svo var leitt okkur í gegnum skólann og okkur sýnt sú aðstaða sem skólinn hefur upp á að bjóða. Var bara mjög ánægð með allt saman og svo var endað á grillveislu í boði nemendafélagsins
Visku. Lögðum svo af stað heim um klukkan 1, fékk far hjá Davíð Þór.
Um kvöldið fórum ég og Anna út að borða á Tapas, ummm.... ýkt gott. Tókum svo smá rúnt og rúlluðum svo í kef um miðnætti eftir vel heppnaða bæjarferð.
Á fimmtudaginn ætluðum ég, Anna, Gunnar og Steini að fara í bílabíó á Nýbílaveginum en okkur var vísað í burtu vegna of mikillar aðsóknar. En við tókum bara cruz í bænum og kíktum meðal annars á reykjavíkurbryggju og skoðuðum bátaflotann, vei......
Svo fórum við heim til Steina og spiluðum Trivial, en ég man ekki alveg hver vann en held samt að það hafi verið ég ;) hehe eða hvað ??? En Anna mín þú stendur þig vel með "spilafælnina" þetta er allt að koma :)
Fór í bíó á sunnudaginn með Önnu og Gunna á "
Maður eins og ég" hún var bara nokkuð góð, Jón Gnarr er náttla algjör snillingur og stendur alltaf fyrir sínu. Karakterinn sem Þorsteinn Guðmundsson lék var ekkert smá frábær, fílaði hann ýkt vel :) hehe svona mann vill ég :þ
Ef þið hafið ekki nú þegar skellt ykkur í bíó á þessa mynd þá verðið þið að kíkja í bíó !!!
Until soon... bæjó
Váá litla maraþonið hjá mér á lau.... eftir vaktina hittumst við stelpurnar heima og fengum okkur í glas, það var geggjað stuð hjá okkur, tókum dansinn í stofunni :) Stefnan var tekin í höfuðborgina uppúr 10 en því miður rétt misstum við af flugeldasýningunni :( Röltum niðrá Ingólfstorg og hlustuðum á "Á móti sól" taka nokkra smelli....... það var enginn smá fólksfjöldi í bænum, hef bara sjaldan séð svona marga saman komna. Fórum á NASA og vorum þar allt kvöldið í gúddí fýling á dansgólfinu, ég og Anna tókum "dansinn okkar" og áður en við vissum af var kominn smá hringur í kringum okkur ;) hehe. Þegar klukkan var farin að ganga 6 gat ég bara hreinlega ekki meir... búin að vera á fótum í rúman sólarhring ! Tókum röltið að pulsuvagninum þar sem við hittum Beggu, Dísu og fleiri. Einar splæsti pulsur á gengið, góður strákur :) Svo kom það hrikalegasta sem ég hef lent í á æfinni, ég og Anna vorum að reina að redda okkur fari í kef... það var enginn á leiðinni heim.... en viti menn enginn annar en Héðinn Waage bíður okkur far, say no more !!!
Fyrir utan það að hafa haldið að þetta yrði mitt síðasta kvöld þá var bara mjög gaman. Plötusnúðurinn á NASA er enginn smá snillingur er að fýla hann í botn. Síjú later :)
Hallo.... var að koma heim af 12 tíma vakt og þá er bara að henda sér í sturtu og klæða sig í djammgallann :) Vinkonurnar ætla að kíkja heim og svo verður lagt af stað í bæinn á menningarnóttina..... Ingvar hennar Stebbu ætlar að vera svo góður að gefa okkur skutl í bæinn... þessi elska :) en ég verð að fara að opna einn kaldan og gera mig klára...... júhú það verður sko allt vitlaust í kvöld ;) Góða skemmtun á menningarnótt !!!
"
Velkomin á ljósanótt" er titill sigurlagsins í ljósalagakeppninni sem haldin var í gærkveldi í Stapanum.... Satt að segja fannst mér ekkert varið í þessa keppni, en sigurlagið sjálft var fínt, lag sem allir geta lært eftir að hafa heyrt það einu sinni eða kannski tvisvar...... :) þannig að við Reykjanesbæjarbúar getum tekið undir þegar lagið kemst í spilun á fm eða sterio :) hehe. Bakarasonurinn Ásmundur Valgeirsson á heiðurinn af þessu "skemmtilega" lagi ! Mundi kallinn..... "til hamingju" ;) En ég veit nú ekki alveg hvað hann Björn Jörundur var að gera þarna á sviðinu sem kynnir.....hann var bara engan veginn að standa sig þessi strákur.... :( Allt sem kom uppúr honum var bara algjör vitleysa, hann vissi bara ekkert hvað hann var að segja, æjæj.
Litli "stóri" bróðir var að koma heim eftir rúmlega vikudvöl í Vatnaskógi þannig að stóra systir þurfti að setja í nokkrar vélar og hlúa að krílinu :) Og by the way.... loksins er eitthvað að gera í þessari vinnu minni, bara brjáluð aukavinna og ég er mjög ánægð með það, því ekki veitir af peningunum !!! Verð að vinna skiptivakt fyrir Guðbjörn "sæta" hann er sko söngvari :) hehe á lau.... frá 6-18:00, svo verður að sjálfsögðu kíkt á lífið á
menningarnótt í Reykjavík. Við skvísurnar ætlum svo að kíkja á djammið um kvöldið ! Ath það er sko 28 stiga hiti í London "my second hometown" væri alveg til í að vera þar núna :)
Góða helgi ;)
Hvaða týpa ert þú ?
Humm... ég veit nú ekki hvað er mikið vit í þessu.... en eitt er rétt að ég er laganemi ! Hitt má nú ræða um.... ekki alveg sammála :)
Jæja þá fer að styttast í að skólinn byrji.... var að fjárfesta í fartölvu þannig að maður er á fullu að undirbúa sig fyrir
námið.
Er búin að vera að afla mér upplýsinga á netinu um námið og hvernig best sé að taka á því. Þannig að ég verð tilbúin að takast á við alvöru lífsins á næstu dögum hehe....
Er allavega orðin mjög spennt og hlakka bara til að fara í skóla á ný eftri næstum tveggja ára pásu... váá það borgar sig að taka ekki of langa pásu ;)
Ég þarf að fara að drífa mig í að búa til linka hérna til hliðar...... þetta gengur sko ekki !!!! Þarf bara smá hjáp :(
Hæ hæ !!!
Váá var ekkert smá fegin að hafa tekið þá ákvörðum um að vera bara heima um verslunarmannahelgina. Uff greyin sem fóru á
þjóðhátíð í grenjandi rigningu og roki...... allavega mundi ég sko ekki meika það :) hehe kannski ekki skrýtið !
Það var geggjað grillpartý hjá okkur vinunum á lau.... 12 manns og þvílíka hlaðborðið líka :þ
Svo um kvöldið sló Hlynur gítarsnillingur á létta strengi og honum til aðstoðar var Beggi, þeir héldu uppi stemningunni í c.a 2 tíma eða svo.
Enduðum svo í smá eftirpartý hjá Hlyn.... veðrið bauð ekkert uppá bæjarrölt :(
Júhú.... á bara eftir að vinna í 5 tíma og þá er ég komin í helgarfrí. Verslunarmannahelgin framundan og flestir á leið úr bænum en þeim BESTU er boðið í grillveislu hjá Stebbu vinkonu...... eða allavega þeim sem fara ekki neitt. Ætla nú bara að hafa það gott um helgina og njóta þess að vera í fríi. Góða helgi !
which mr. men/little miss are you?
take the quiz & find out! :)
quiz made by